17.07.1917
Neðri deild: 12. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í C-deild Alþingistíðinda. (2685)
51. mál, forðagæsla
Sveinn Ólafsson:
Það voru einungis örfá orð, sem jeg vildi segja, út af siðaprjedikun hv. þm
Dala. (B. J.). Jeg sje, að hann gengur út; þingmaðurinn vill víst ekki heyra það, sem jeg hefi að segja honum. Hann vill láta skerpa eftirlitið með forðagæslu og kúga menn til hlýðni og auðsveipni. Jeg skal því geta þess, að til voru hjer lög í þessu landi, sem nefnd voru Stóridómur. Allir kannast við þau lög og þarf jeg ekki að lýsa þeim frekar. En jafnkunnugt er það, að strangleiki Stóradóms skapaði hvorki löghlýðni nje siðavendni, og tillaga hv. þm. Dala. (B. J.) um að framfylgja lögunum stranglega mundi verða álíka áhrifamikil og Stóridómur.
Jeg verð fastlega að mæla með því, að frv. þetta sje látið ganga til annarar umræðu og sett í nefnd. Þó að forðagæslulögin komi ef til vill sumsstaðar að einhverju gagni, þá verður ekki um það deilt, að þau veikja víða ábyrgðartilfinningu manna, að þau eru höfð í óvirðingu og að háði, en spjátrungar og menn, sem ekki eru dómhæfir, eru valdir til að framfylgja þeim; það sýnir líka ljóslega, hvernig lögunum hefir verið framfylgt, að síðan þau komu í gildi hefir verið fellir hjer á landi hvert árið eftir annað. Áður var það fátítt, að fellir kæmi fyrir. Hvar eru þá ávextirnir og gagnið af forðagæslulögunum?