15.08.1917
Neðri deild: 34. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 693 í B-deild Alþingistíðinda. (269)

4. mál, samþykkt á landsreikningum 1914 og 1915

Benedikt Sveinsson:

Yfirskoðunarmenn landsreikninganna hafa ekki haft tíma til að gagnrýna nál. þetta sem skyldi, og verða því að sleppa ýmsu í athugasemdum háttv. nefndar, sem ástæða hefði verið til að minnast á. Mun jeg því að eins minnast á tvö atriði að þessu sinni. Háttv. framsm. (M. G.) skaut því til yfirskoðunarmanna, að heppilegt mundi vera, að þeir bæru sig saman við stjórnina áður en þeir gerðu athugasemdir sínar. Þessu er því að svara, að yfirskoðunarmennirnir hafa einmitt gert mikið að því, einkum fyrra árið; en ef mjög mikið ætti að gera að því, mundi það kosta margra mánaða daglega vinnu, og jeg er hræddur um, að stjórninni mundi þykja það ónæðissamt og ekki vinnudrjúgt að þurfa sí og æ að sinna slíkum fyrirspurnum og leita að andsvörum. Það má því telja slíkt fyrirkomulag óframkvæmanlegt. Þó leita yfirskoðunarmenn þrásinnis til stjórnarráðsins, eða jafnan þegar þeir búast við að geta fengið glöggar upplýsingar. En ef ætti að fara að bera sig saman við stjórnina um allar athugasemdirnar áður en þær væru prentaðar, þá væri það ekki hægt öðru vísi en svo, að senda þær til stjórnarráðsins sem handrit, og það sendi svo svör sín til yfirskoðunarmanna á sama hátt, og svo yrðu endilegar athugasemdir, svör og till. soðið upp úr þessu; en stórefasamt er, að það væri heppilegri aðferð en sú, sem nú er höfð og höfð hefir verið. Það flýtir fyrir yfirskoðendum að skrifa upp athugasemdir sínar jafnóðum og þeir finna eitthvað athugavert, og einatt skýrist ýmislegt síðar við yfirskoðunina fyrir þeim, án þess að þeir hafi þurft að tefja sig og stjórnina á því að leita upplýsinga hjá henni. Fyrir stjórnina er það og þægilegast að fá athugasemdirnar í einu; hún getur þá eftir hentugleikum rannsakað þær og svarað þeim.

Þá ætla jeg að minnast ofurlítið á, hvernig styrknum til Hvanneyrarskóla hefir verið varið. Skólanum voru veittar 1000 kr. hvort árið til verklegs náms. Þetta er sjálfsagt einn allra nauðsynlegasti styrkurinn, sem skólanum er veittur, og líklegastur til að verða að gagni. En hvernig er honum svo varið? Mikill hluti hans gengur til alls annars en hann er til ætlaður. Þetta er með öllu óheimilt. Hækki kol og ljósmeti í verði, svo að fjeð, sem ætlað var til að kaupa það fyrir, hrökkvi ekki, þá er engin heimild að grípa til þessa fjár; það verður að bæta skólanum upp þann halla á annan veg. Mjer finst nefndin hafa í till. sínum tekið altof vægt á skólastjóranum fyrir það að hafa leyft sjer að verja af því fje, sem skólanum var veitt í fastákveðnum tilgangi, til alls annars en til var ætlast. Árið 1914 var ekki varið til verklegs náms af 1000 kr. nema kr. 554,07; að þessu var fundið af yfirskoðunarmönnunum. Þá var því svarað þannig:

»Verklegi styrkurinn 1914 er ekki borgaður allur út fyr en við lok skólaársins 1914—1915, að afloknu prófi; er það gert til þess, að námsmenn haldi betur út námsárið og gangi síður frá prófi. Í reikningi skólastjóra kemur þetta svo út, sem peningarnir gangi af, en þeir liggja hjá honum til að greiðast í maímánuði árið eftir.«

Ef það væri siður að geyma þannig fje ár frá ári í þeim tilgangi, sem hjer er greindur, þá ætti eftir fyrsta árið, að regla þessi er tekin upp, að vera borgað árlega jafnmikið og veitt er, og því vera varið 1000 kr til verklegs náms árið 1914, eða nær 1500 kr. ef horfið hefði verið frá reglu skólastjóra og farið eftir fyrirmælum fjárlaganna, þannig að alt, sem veitt var á því ári, hefði verið goldið það ár, að viðbættu því, sem afgangs hafði orðið frá árinu 1914.

En svo kemur nú ársreikningurinn 1915, og þar kemur það í ljós, að í stað þess, að skólastjóri hefði átt að verja til verklegs náms það ár öllum 1000 kr., sem til þess voru veittar, og auk þess eftirstöðvunum frá fyrra ári, hefir hann að eins varið til þess alls kr. 458,66, eða samtals bæði árin einum kr. 987,27, — með öðrum orðum, ekki helming fjár þess, sem veitt var; þessi meðferð fjárins verður að teljast með öllu óheimil, og hefði skólastjóri átt að endurgreiða fyrra árið 445 kr. 93 a. og síðara árið 541 kr. 34 a., væri farið eftir fyrirmælum fjárlaganna. Þessi aðferð, að verja ekki helming fjár þess, sem veitt er til verklegs náms, má teljast alveg óforsvaranleg við skóla, sem einmitt á að kenna mönnum vinnubrögð. Þessu styrktarfje hefir að miklu leyti verið varið til annars, meðal annars til að kaupa svo kölluð »búnaðaráhöld«, þar á meðal »Kapitólu« og þess konar bókarusl! Af þessu sjest einnig, að svarið, sem stjórnin birtir frá skólastjóra og jeg las upp, er beint blekkjandi og rangt, og má slík óráðvendni ekki vera óátalin.

Háttv. framsm. (M. G.) sagði, að skólastjóri væri að skirrast við að láta útgjöld til skólans fara fram úr fjárveitingu. Þetta er góðra gjalda vert; en meðferð hans á fjenu, sem veitt er, sýnir, að hann vill vera einráður um það, hvernig hann ver því, en hirðir ekki um að fara eftir því, sem fjárveitingavaldið hefir fyrir mælt. En fyrst að fjárveitingarnar eru sundurliðaðar í fjárlögunum og ætlaðar til ákveðinna hluta, þá verður skólastjóri að taka það til greina, og með öllu er það ófært, að ekki sje notaður helmingur af því fje, sem ætlað er til verklegs náms, til þess, heldur til annars. Slíkt sem þetta þarf að athuga, svo að það komi ekki fyrir eftirleiðis. Það kemur að vísu víðar fyrir, að haggað sje til ákvæðum og fje fært frá einum lið til annars, en hvergi eru önnur eins brögð að því eins og hjer. Skal það játað, að fyrir getur komið, að slíkt sje ekki óheppilegt í sjálfu sjer, en þó er það til að villa þinginu sýn, ef settir eru upp liðir ár eftir ár, sem aldrei eru notaðir; það er ekki annað en sjerstök aðferð til að ná í fje út úr landssjóði undir fölsku yfirskini.

Það mundi standa yfirskoðendum nærri að fara nokkuð rækilega út í mál það, sem hjer liggur fyrir, en jeg verð þó að leiða minn hest frá því, af þeim ástæðum, sem jeg gat um í upphafi máls míns.