25.07.1917
Neðri deild: 17. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í C-deild Alþingistíðinda. (2697)

52. mál, skipun læknishéraða o. fl. (Bakkahérað)

Frsm. (Einar Árnason):

Skal vera mjög stuttorður. Hv. þm. Stranda. (M. P.) sagði, að komið hefði fram misskilningur í ræðu minni. Það má vel vera, að altaf sje settur næsti læknir, þegar enginn fæst í hjeraðið. En hvað er þá unnið við að skifta hjeruðunum, þegar þau eru gerð svo lítil, að enginn vill vera þar? Það var þetta, sem nefndin lagði aðaláhersluna á. Hv. 1. þm. N.-M. (J. J.) taldi mikil vandkvæði á að færa læknisbústaðinn. Það er þó það eina, sem er reynandi. Jeg tel það alls ekki óhugsandi, að hægt sje að fá skifti á Brekku og annari jörð, nær miðju hjeraðsins, sem læknirinn vildi eins vel búa á. Jeg sje ekki, að honum (J. J.) geti verið það nokkuð á móti skapi, að málið sje undirbúið í samráði við landsstjórnina, enda mun hún fús á að gera hvað hún getur til að greiða fyrir málinu, og sama máli gegnir um landlækni.