15.08.1917
Neðri deild: 34. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 696 í B-deild Alþingistíðinda. (270)
4. mál, samþykkt á landsreikningum 1914 og 1915
Matthías Ólafsson:
Mjer heyrðist á háttv. frsm. (M. G), að honum þætti jeg hafa farið nokkuð lauslega yfir ýmislegt, og skal jeg nú bæta nokkru við, og minnast þá fyrst á 234. athugasemd yfirskoðunarmanna við landsreikninginn 1914. Athugasemd þeirri er þannig varið, að 1913 fór stjórnin fram á, að veittar væru 18000 kr. til framhalds rannsókn á járnbrautarstæði austur. Þingið feldi þessa fjárveitingu; en þrátt fyrir það veitir stjórnin fje til framhalds rannsókninni. Athugasemd yfirskoðunarmanna út af þessu er ekki gerð af því, að þeir væru í sjálfu sjer móti því, þótt þessari litlu upphæð væri varið til rannsóknarinnar; en þeim fanst ekki annars kostur en að víta stjórnina fyrir það, að hún hafði notað fje þetta, þvert ofan í yfirlýstan þingvilja, og bjóst jeg við, að háttv. nefnd mundi koma fram með tillögu um það.
Hvað snertir 138. athugasemdina við landsreikninginn 1915 þá verð jeg að segja, að mjer virðist háttv. nefnd komast að einkennilegri niðurstöðu. Af því, að yfirskoðunarmennirnir ljetu hjá líða 1914 að heimta, að endurgreiddar væru þær 300 kr., sem veittar voru til að gefa út skýrslu yfir Þjóðmenjasafnið, þá sýnist háttv. nefnd telja það sjálfsagt, að yfirskoðunarmennirnir ljetu það líka vera 1915, þótt enn væri engin skýrslan komin út. Auk þess er þess að geta, að við vissum ekki ýmislegt um mál þetta 1914, sem við höfðum fengið upplýsingar um 1915. Stjórnin segir, að það liggi í hlutarins eðli, að fyrst verði að semja skýrsluna, áður en hún sje gefin út, og til þess þurfi fje. En eftir því, sem fjárveitingin er orðuð í fjárlögunum, verður ekki annað sjeð en þingið hafi ætlað, að skýrslan væri þegar samin, eða það hafi talið samning hennar eitt af skyldustörfum fornmenjavarðar. Mjer er ómögulegt að komast að sömu niðurstöðu og háttv. nefnd, hvað þetta snertir, en það er auðvitað á þingsins valdi að afráða, hvað gera skuli, þegar þannig er farið beint á móti lögunum.
Háttv. framsm. (M. G.) benti á, að endurskoðunarmennirnir ættu að ráðfæra sig við stjórnarráðið, til að spara athugasemdir. Það höfum við hvað eftir annað gert, en oft þar verið leitað ullar í geitarhús, því að margir hafa verið við að semja landsreikningana, og þá eigi altaf við í svipinn sá, er gefið gat skýringar. Við gátum því alls ekki altaf fengið skýringar. Þetta er eitt atriði af mörgum, sem bendir á, að annað fyrirkomulag ætti að hafa við samningu landsreikninganna en nú er gert.