06.08.1917
Neðri deild: 26. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 397 í C-deild Alþingistíðinda. (2712)

59. mál, mótorvélstjóraskóli

Benedikt Sveinsson:

Með skírskotun til röksemda þeirra, er fram komu í ræðu hv. frsm. fjárveitinganefndar (B. J ), vil jeg leyfa mjer að bera fram svo hljóðandi rökstudda dagskrá:

Í trausti þess, að aukið verði nú í fjárlögum tillag til fræðslu um meðferð gangvjela í skipum, og í trausti þess, að stjórnin beri fram á næsta þingi frv. til laga um aukna kenslu við vjelstjóraskólann í Reykjavík, til þess að bæta úr þeirri þörf, er frv. ræðir um tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.