15.08.1917
Neðri deild: 34. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í B-deild Alþingistíðinda. (272)
4. mál, samþykkt á landsreikningum 1914 og 1915
Einar Arnórsson:
Það er ekki nema sjálfsagt, eðlilegt og löglegt, að endurskoðunarmenn og Alþingi finni að því, sem aflaga fer hjá landsstjórninni, en þær aðfinslur verða þó að vera á viti og sanngirni bygðar, ef þær eiga að bera tilætlaðan árangur. Jeg verð að segja það, að sumar af aðfinslunum við landsreikninginn 1914 voru blátt áfram hlægilegar, t. d. sumar um vegamálareikningana og reikninga safnanna. Þær eru altof smávægilegar, eins og háttv. fjárhagsnefnd hjelt rjettilega fram.
Það eru að eins fá atriði, sem jeg vil víkja ofurlítið að, og það er þá fyrst um bæjarsíma Reykjavíkur. Það var víst árið 1912, að bæjarsími Reykjavíkur, sem áður var eign hlutafjelags, var lagður undir landssímann. Það varð þá að samkomulagi milli símastjórans og þáverandi ráðherra, Hannesar Hafsteins, að símastjórinn fengi sjerstaka aukaþóknun, 5—600 kr. á ári, fyrir að hafa á hendi umsjón með starfrækslu bæjarsímans. Jeg skal ekkert fara út í það, hvort þessi ráðstöfun hafi verið rjettmæt, en hvað sem um það er, þá sætti hún einhverjum mótmælum á þinginu 1913, en þó mun stjórninni ekki hafa verið skipað að ónýta þessa ráðstöfun; til þess, að það yrði gert, þyrfti sjerstaka skipun um það í fjárlögunum, að kippa bæri þessu til baka, eða þingsályktun. Það getur nefnilega verið mikið álitamál, hvað hver einstakur embættismaður er skyldur til að inna af hendi, sem embættisverk.
Þá kem jeg að till. endurskoðendanna út af ferðakostnaðinum til umsjónarmanna vitanna. Það hefir verið venja, að sjerkostnaður vegna ferðalaga í sambandi við byggingu hvers vita hefir verið tekinn á byggingarkostnaðarreikning vitans, en ekki tekinn af fjárupphæð þeirri, sem veitt er í fjárlögunum til ferðakostnaðar handa vitamálastjóra. Jeg skal t. d. benda á það, að bygging Dalatangaþokulúðursins hafði í för með sjer utanför fyrir vitamálastjórann. Slíkur kostnaður gat ekki orðið tekinn af fjárveitingu til ferðakostnaðar. Nú spyrja yfirskoðunarmennirnir, til hvers fjenu hafi verið eytt, úr því að ekki sje goldinn með því kostnaður við nýbygging vita. Verkfræðingurinn þarf að fara margar eftirlitsferðir til að sjá um ýmsa vita á landinu. Hann getur t. d. ekki farið í sömu ferðinni að líta eftir vitabyggingu á Svörtuloftum og vitanum í Dyrhólaey. Til þessara síðastnefndu ferða hefir fjeð verið notað.
Mjer hefir verið talið það til ábyrgðar 1915, að greiddar hafi verið 300 kr. fyrir útgáfu skýrslu um forngripasafnið frá því árið 1876, án þess að bókin hafi verið gefin út. Nú er það játað, að þetta fje hafi verið greitt 1914, án þess að bókin væri gefin út. Yfirskoðunarmenn landsreikninganna það ár hafa ekki gert neina athugasemd um að telja stjórninni þetta til ábyrgðar, og vita þeir þó, að skilyrðinu er ekki fremur fullnægt þá en 1915. Jeg skal taka það fram, að það að gefa út bók er samkvæmt málvenju ekki eingöngu það að prenta hana, heldur er það alt verkið, sem útgáfan hefir í för með sjer. Á þinginu 1915 var sett inn í fjárlögin fyrir árin 1916—17 fjárveiting til þess að semja þessa bók, svo að fjárveitingavaldið hefir þá skilið þetta á alveg sama hátt og stjórnin. Þetta er líka mjög eðlilegt. Hvernig sem annars er litið á störf fornmenjavarðar, þá væri ósanngjarnt að krefjast þess, að hann semdi þessa bók endurgjaldslaust. Annars læt jeg mig þetta mál litlu skifta, enda hefir háttv. fjárhagsnefnd litið alveg rjett á málið.
Þá kem jeg að aths. út af fje því, sem eytt hefir verið til þess að rannsaka járnbrautarlagningu. Stjórnin leit svo á, að úr því að einu sinni hefði verið byrjað á þessu verki, þá væri rjett að halda því áfram, svo að áðurgerðar rannsóknir yrðu eigi til einkis, því að þótt aðalrannsóknin væri feld á þinginu 1915, þá leit stjórnin svo á, að óhugsandi væri, að þetta mál yrði ekki einhvern tíma rannsakað.
Þá skal jeg víkja nokkrum orðum að háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.). Hann stóð hjer upp og hjelt stranga reiðiprjedikun yfir stjórninni út af landsreikningunum. Sumt af því, sem hann sagði, var rjettmætt, en sumt var aftur bygt á mesta misskilningi og vanþekkingu. Jeg skal benda háttv. þm. (J. B.) á það, að fjárhagsnefnd og aðrir hafa á undan honum lagt það til, að frímerkjabirgðir landsins yrðu taldar og skrá gerð yfir þær. Jeg bendi honum á þetta af því, að mjer fanst hann tala um þetta eins og hann hefði fundið upp þetta »púður«.
Viðvíkjandi því, sem háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) sagði um svör stjórnarinnar 1915 við aths. yfirskoðunarmannanna, þá skal jeg geta þess, að jeg ber enga ábyrgð á þeim. Það var landritari, sem stóð þar fyrir svörum. Okkur fanst rjett, að hann svaraði þeim, af því að hann var því máli kunnugastur.
Jeg nenni ekki að vera að eltast við ýmislegt smælki, sem háttv. þm. (J. B.) mintist á, svo sem málskostnað í opinberum málum og endurgreiðslu skyndilána. En eitt var það, sem hann talaði um, sem lýsti hinni róttækustu vanþekkingu, og það var þegar hann var að tala um embættissamtöl og frímerkjakostnað embættismanna. Það er ekkert um slíka reikninga að segja, því að þessu fje er varið beint í þarfir embættisins, en ekki í þarfir embættismannanna. Hann taldi það óhæfu, að þessi fjárveiting færi langt fram úr áætlun, og hjelt víst, að hún gengi beint til embættismanna, en eins og jeg hefi sagt honum þá er ekki svo. Þetta fylgir blátt áfram embættinu og gengur beint í þágu landsins. Jeg skal til dæmis nefna það, að oft getur sparast mikið fje, að sýslumaður geti símað til þess, sem á að borga toll, í stað þess, að hann yrði annars að takast ferð á hendur til að innheimta tollinn. Sömuleiðis má nefna það, að landlæknir þarf oft og einatt að síma til hjeraðslækna, þótt ekki komi upp nema örlítil veikindi, ef hætta getur verið á ferðum. Sömuleiðis má nefna það, að á okkar mælikvarða er það stórfje, sem eytt er í símskeyti beint vegna stríðsins, og yfirleitt má segja það, að eftir því, sem viðskiftalífið í landinu þróast, því meiru fje er varið til skeytasendinga. Háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) ætlast til, að ríkt eftirlit sje haft með því, að embættismenn misbrúki ekki vald sitt til að senda skeyti og fá endurgreiddan frímerkjakostnað. Jeg skal nú upplýsa háttv. þm. (J. B.) um það, að það er haft eftirlit með þessu. Það eru föst ákvæði um það, hverjir megi nota þjónustufrímerki og hverjir megi senda skeyti á landsins kostnað, og jeg veit ekki nokkurt dæmi til þess, að slíkt hafi verið misbrúkað. Hafi nokkur ágreiningur orðið um það, þá hefir stjórnarráðið skorið úr. Háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) láðist að geta þess, að það að senda skeyti innanlands, á kostnað hins opinbera, er í raun og veru ekki annað en að taka úr einum vasanum og láta í hinn. (J. B.: Jeg vissi það). Ef háttv. þm. (J. B.) hefir vitað það, þá átti hann að geta þess með fullum drengskap og sannleika. Um utanlandsskeytin er það að segja, að þau eru nær eingöngu send af stjórnarráðinu og eru sjálfsögð og óhjákvæmileg, einkum eins og nú stendur. En ef endurskoðendurnir ætluðu sjer að fara að rannsaka allan símskeytareikninginn, þá býst jeg við, að þeim veitti það erfitt. Hvað áætluninni um slíkan kostnað viðvíkur, þá er það að segja, að ógerningur er alveg að áætla nokkuð um það, hve mikill kostnaðurinn verður fyrir fyrra árið, hvað þá síðara ár fjárlaganna. Það sjer t. d. enginn, hve mikið fje muni þurfa til þessa árið 1919. En ef stjórnin ætlaði sjer að fara að takmarka skeytasendingar vegna kostnaðarins, þá væri það mjög vítavert. Því að það gæti kostað landið mörg hundruð þúsundir króna. Það væri líka mjög vítavert, ef embættismenn væru svo nánasarlegir að vanrækja að senda skeyti, þegar þörf væri á. Það gæti t. d. verið hættulegt, ef hjeraðslæknar vanræktu að tilkynna landlækni, ef næm sótt kæmi upp í hjeraði þeirra.
Háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) var með einhverja Gróusögu um það, að mikið fje væri geymt ávaxtalaust í járnskáp í Landsbankanum. Það kemur auðvitað fyrir, að talsvert fje liggur í Landsbankanum, sem ætlað er til daglegra útgjalda, og jafnvel mun það vera stundum 100 þús. kr. En jeg get frætt háttv. þm. (J. B.) á því, að kassi landssjóðs þarf oft og einatt að vera stærri en það.
Athugasemdir háttv. þm. (J. B.) út af kostnaðinn við rannsókn símleiða get jeg leitt hjá mjer. Jeg skal að eins geta þess í því sambandi, að fyrir nokkrum árum var heimtaður kafflbollareikningur af vissum manni, sem var í þjónustu landsins. Mjer virðist eitthvað líku máli að gegna um þetta. Hvorugt mun vera til eftirbreytni.
Sú athugasemd, sem háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) kom með um landssjóðsverslunina, var rjett. Það er satt, að ekki var gengið frá reikningunum nógu snemma. En nú er stjórnin búin að láta gera upp reikninginn, og mun það sjást, að þar hefir ekki verið stolið stórfje.
Loks tek jeg það fram, að jeg ber enga ábyrgð á því, hvernig reikningurinn 1915 er úr garði ger. Frá honum er gengið af núverandi stjórn, en ekki mjer.