25.07.1917
Neðri deild: 17. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 406 í C-deild Alþingistíðinda. (2725)
87. mál, sala á ráðherrabústaðnum
Flm. (Sigurður Sigurðsson):
Jeg hefi orðið þess var, síðan tillaga mín, sem tekin var aftur (þingsál.till. um sama mál), kom fram, að sumir hafa litið svo á, sem þetta væri frá minni hálfu títuprjónastingur til stjórnarinnar. En jeg get strax lýst yfir því, að því fer fjarri, að svo sje.
Ástæðan er blátt áfram sú, að jeg lít svo á, að rjett sje og sjálfsagt að landið selji húsið svo fljótt sem mögulegt er. Fyrir þessu hefi jeg gert stutta grein í athugasemdinni aftan við frv. Jeg get bætt því við, að geysihátt verð er nú á húsum, svo að sennilegt er, að selja megi þetta hús fyrir sæmilegt verð. Hitt er víst, að bæði þetta hús og önnur timburhús þurfa mikinn viðhaldskostnað, sem síst mun verða ótilfinnanlegri þegar landið á í hlut. Jeg skal geta þess, að árið 1917 hefir aðgerðin numið 3650 kr., auk 2600 kr. fyrir innanbúshluti, skrifborð o. fl., og þessi viðhaldskostnaður fer áreiðanlega vaxandi, eftir því sem húsið eldist.
Jeg held, að málið sje svo einfalt, að ekki þurfi að vísa því til nefndar, en ekki skal jeg samt hafa á móti því, ef menn óska. Jeg vona, að menn taki málinu með góðum huga. Praktiskar ástæður mæla eindregið með því, að húsið sje selt, og það sem fyrst.