04.08.1917
Neðri deild: 25. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í C-deild Alþingistíðinda. (2733)
87. mál, sala á ráðherrabústaðnum
Sigurður Sigurðsson:
Enda þótt jeg búist við, að forlög þessa frv. sjeu ráðin, tel jeg skyldu mína að segja örfá orð, út af ræðu hv. frsm. (Þorst. J.). Mjer skildist á honum, sem hann byggist brátt við ráðherraskiftum, og að væntanlegur forsætisráðh. myndi þurfa á húsaskjóli að halda. Jeg er enginn spámaður, og ætla engu að spá um það, hve lengi þessi forsætisráðherra, sem nú er, muni vera við völd. En jeg hafði búist við, að eigi þyrfti að hafa áhyggjur út af ráðherrabústað á þessu þingi.
Þar sem hv. frsm. (Þorst. J.) álítur, að samkvæmt lögum sje skylda að sjá forsætisráðherranum fyrir leigulausum bústað, tel jeg vafasamt, að skilja beri ákvæði laganna þann veg, heldur þannig, að landið borgi húsaleigu fyrir hann, ef það á ekki bústaðinn sjálft. Hygg jeg, að þetta sje eins rjettur skilningur og hinn, að landið skuli bókstaflega skyldugt til að eiga hús, til að hýsa forsætisráðherra. Að því er snertir þann ráðherra, er nú býr í húsinu, má vitanlega semja svo um við kaupanda, að hann fái þó að vera þar, meðan hans nýtur við sem ráðherra.
„En bæjarfógetinn?“ hvíslaði einhver. Honum er engin vorkunn. Hann er sannarlega fær um að sjá sjer fyrir húsnæði sjálfur. Jeg held, að við ættum nú að sæta færi og selja hús þetta við fyrstu hentugleika. Jeg hlýt þá að vera heimskari en allir aðrir, ef jeg geng einn með þessa hugsun, að það sje „praktiskt“ að selja þetta hús. Alt það, sem sagt er um, að bústað vanti þá handa forsætisráðherra, Var sagt út í hött. Hitt þarf jeg ekki að taka aftur fram, að sjálfsagt er, þegar eftir stríðið, að byggja nýtt hús úr steini yfir þessa háttv. menn, sem vjer köllum hæstv. ráðherra.
Vona jeg því, að þrátt fyrir alt verði frv. samþ.