08.08.1917
Neðri deild: 28. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í C-deild Alþingistíðinda. (2753)

99. mál, sveitarstjórnarlög

Frsm. (Einar Jónsson):

Eins og nefndarálitið á þgskj. 301 ber með sjer. hefir allsherjarnefnd haft frv. þetta til meðferðar, en eigi getað fallist á innihald þess. Eru aðalástæðurnar fyrir þeirri skoðun nefndarinnar færðar í nefndarálitinu, og virðist ekki þörf á að hafa þær yfir á ný. Nefndin lítur svo á, að ef farið væri að gera undanþágur á rjettindum þeirra, er af sveit hafa þegið, þá verði takmörkin svo vandfundin og torveld viðureignar, að ef til vill verði misrjettið stærra eftir en áður. Slík breyting verður altaf ósanngjörn. Til dæmis er það hið stakasta misrjetti að neita þeim, sem á 3 börn, um öll rjettindi, en veita þau þeim, sem á 4 börn, og veita þeim rjettindi, sem ekki hefir þegið nema 70 kr. af sveit, en neita þeim, sem hefir fengið 75 kr. styrk, um öll rjettindi, þótt hann sje þeirra miklu maklegri en hinn. Í flestum tilfellum væri rjettast, að sveitarstyrkur hefði engan rjettindamissi í för með sjer, en það verður ómögulegt að koma því við, nema með því að breyta stjórnarskránni.

Nefndin leggur líka á móti 2. breytingu frv., því að með þessu móti gæti svo orðið, að þrefalt gjald yrði lagt á einn og sama manninn, fyrst og fremst tvöfalt útsvar og auk þess skattur af veiði í landssjóð. Þetta var aðalástæðan fyrir því, að nefndin vildi fella breytinguna. Að öðru leyti vísa jeg til nefndarálitsins, og orðlengi eigi frekar, nema andmæli komi fram.