04.09.1917
Neðri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í C-deild Alþingistíðinda. (2786)
107. mál, merkjalög
Frsm. meiri hl. (Pjetur Þórðarson). Jeg vildi helst óska, að frv. væri nú samþ. með þeim brtt., sem fyrir liggja; við 3. umr. geta menn smeygt inn brtt., ef þurfa þykir.
Það sem mest veltur á í þessu máli, er þörfin. Meiri hluti nefndarinnar hefir komist að fastri niðurstöðu um þörfina, sem hv. frsm. minni hlutans (St. St.) gerir lítið úr, en hv. þm. A.-Sk. (Þorl. J.) virðist viðurkenna að nokkru leyti. Og hjer veltur alt á því, hvort hv. deild vill viðurkenna þörfina. Nefndin, eða meiri hluti hennar, komst að raun um það, að ekki væri hægt að bæta úr öllum ágreiningi, eða koma í veg fyrir slíkan ágreining, vegna óglöggra merkja, með því að taka að eins fyrir lítinn hluta jarðanna, þ. e. þær, sem ágreiningur er um. Nefndinni sýnist hægt að gera út um þann ágreining með þeim lögum, sem nú gilda. En með því að ákvæði þeirra laga eru sum óhentug, t. d. um sektir, þegar dráttur verður á að útkljá merkjaþrætur o. fl., þá þótti nefndinni rjett að gera málið upp alveg frá rótum. Hv. frsm. minni hlutans (St. St.) hjelt, að frv. þetta mundi valda óánægju þar, sem enginn ágreiningur væri. Jeg mun hafa tekið fram áður, að þá er ekki um mikið verk að ræða, en ef svo sýndist, mætti undanskilja þinglesturinn, en ekki er unt til fullnustu að komast fyrir allar misfellur og þörfina á endurbótum, nema með því að endurskoða alt.
Í sambandi við þetta minnist jeg orða hv. þm. A.-Sk. (Þorl. J.), er hann sagði, að með þessu væri rótað upp í því, sem áður hefir verið gert, og að þetta leiddi til glundroða. En svo er alls ekki. Þar, sem alt er í lagi, er ekki annað en að endurrita skjölin, og þar, sem enginn ágreiningur er, mundi samt koma í ljós, að ekki væri alt í samræmi við þinglesnar merkjalýsingar, en með frv. er hægt að tryggja þetta samræmi. Þetta er því ekki til að vekja ágreining, heldur til að útkljá slíkan ágreining og koma í veg fyrir hann framvegis. Jeg veit það, að mesta fyrirhöfnin er að færa inn í bækur landamerkjalýsingarnar og þinglesa þær, en jeg hefi góða von um, að meiri hlutinn mundi vilja sleppa þinglestrinum, en hitt er ekki svo mikið verk að endurrita lýsingarnar. Með þessu lagi hygg jeg, að almenn endurskoðun mundi bæta úr ruglingi og glundroða, sem á landamerkjum er, en þó skal jeg, eftir bendingum frá meðnefndarmönnum mínum, óska þess, að frv. sje tekið út af dagskrá að þessu sinni.