06.09.1917
Neðri deild: 53. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 475 í C-deild Alþingistíðinda. (2792)
107. mál, merkjalög
Björn Stefánsson:
Jeg er ekki í nokkrum vafa um það, að tilgangur þessa frv. er orð í tíma talað. Samt hefi jeg frá upphafi þessa máls verið mjög í efa um, hvort jeg ætti að hallast að meiri eða minni landbúnaðarnefndar. Mjer dylst ekki, að þar sem ágreiningslaus landamerki eru, og það er víða þar sje stofnað til mikillar og óþarfrar fyrirhafnar og kostnaðar, þegar ætlast er til, að það hindri löglega merkjalýsingu, ef ekki næst til allra er land eiga að merkjum. Oft eru margir eigendur sömu jarðar, og getur sinn verið á hverju landshorni og sumir í öðrum löndum eða jafnvel heimsálfum.
Hitt sje jeg aftur, að þótt fylgt væri ströngustu kröfum sem gerðar eru með frv. þessu, þá verður þó aldrei komist svo langt, að greitt verði úr öllum deilum eða fyrirbygt að þær geti komið síðar. Jeg man dæmi þess að það er ekki fullnægjandi, þótt jörð sje þinglesin, og þótt enginn sje ágreiningur enn kominn, að svo hagar til, að ágreiningsatriðið er fyrinsjáanlegt í framtíðinni. Jeg get t. d. vitnað til þess, þar sem jarðir liggja að sjó og árósar eða lækjarósar skifta löndum. Þá koma oft eyrar við sjóinn, og ósinn getur breytt sjer árlega. Sömuleiðis geta vötn breytt farvegi sem um byggð renna. Geta þá komið upp deilumál hvort nýi eða gamli ósinn eða farvegurinn skuli gilda sem landamerki. Þótt menn nú komi sjer saman um, að sá gamli skuli gilda, geta enn verið deilur um, hver gamli ósinn er, hvort það er sá elsti eða einhver annar. Þá getur maður og rekið sig á þau tilfelli, þar sem lönd liggja við fjarðarbotn, og þar myndast hólmar af framburði vatna. Að þeim leirum geta legið 3—4 jarðir, og þegar landamerkjalýsing er gerð, geta eigendur þeirra allra talið sig eiga nýmyndaða hólma eða eyjar, þar sem þær gróa fyrir þeirra landi. Það er svo víða á Austfjörðum, þar sem sandrif liggja við fjarðarbotn, að smáfyllast upp þær leirur, er inn af þeim liggja. Þótt ágreiningur sje ekki kominn enn þá, þá verður mönnum ljóst, að hann muni koma upp, er þessi nýmynduðu þrætulönd eru orðin verðmæt eign. Jarðir liggja t. d. að á þrjá vegu, og eigendur þeirra allra líta svo á, að það, sem upp fyllist, sje fyrir. sínu landi.
Jeg vil líka benda á, að þótt merkjalýsingar sjeu þinglesnar og enginn ágreiningur sje um landamerki í landamerkjaskrá, þá eru ekki útilokaðar allar deilur fyrir því. Vjer getum
t. d. sagt landamerki sje klettur, og heiti t.d. Hrafnakambur eða Grásteinn eða þess háttar. Nú líður langur tími frá því er merkjalýsing var gerð, og þá fara menn að rífast um landamerkin. Þeim kemur ekki saman um, hvort þessi eða þessi klettur sje sá rjetti klettur, sem í landamerkjaskránni er nefndur. Í einum stað veit jeg til, að ábúendur einnar jarðar viðurkendu að vísu, að svonefndur Grásteinn skifti löndum milli þeirra og nábúanna en þar, sem þeir sögðu landamerkin vera, fanst enginn slíkur steinn, en til að ráða fram úr því grófu þeir í jörð niður þangað til þeir fundu stein, ca. 80 pd. þungan á hann bentu þeir og sögðu: Sjá þarna er Grásteinn. Þannig myndast þrætur. Báðir eru sammála um, að Hrafnakambur eða Grásteinn skifti löndum, en þá vantar sönnun fyrir því, hvor af tveimur klettum í hlutaðeigandi landi sje sá, er eigi það örnefni.
Hv. þm. S.-Þ. (P. J.) talaði um að þetta kæmi í ljós við jarðamatið, sem nú er að fara fram. Það er satt að því leyti, að matsmenn kynnast því, og koma alstaðar þar, sem líklegt er að slíkur ágreiningur eigi sjer stað, og þess vegna vildi jeg skjóta því fram, hvort ekki væri ástæða til, að það væri sett í lögin, að formenn undirmatsnefnda væru settir í merkjadóma, er skera skulu úr ágreiningi um merkjalýsingar.
Annað greinir mig á við hv. þm. S.-Þ. (P. J.) Hann vill láta bíða með þessi lög þar til matinu er lokið. En jeg held, að matið ætti einmitt að herða á því, að frv. nái fram að ganga á þessu þingi. Bæði eru jarðeigendur, út af skýrslunum um matið, og matsmenn með starfi sínu, nýbúnir að fara yfir þetta og rifja það upp. Þetta er nú sem stendur alls staðar í fersku minni; og nú eru til í hverri sýslu menn, sem eru vel kunnugir öllum málavöxtum.
Jeg álít kunnugleika matsmanna svo mikils virði; þeir hafa kynt sjer margt, sem hlutaðeigandi jarðeigendur sleppa vísvitandi, þegar þræta er hafin, því að fyrir dómi talar hver um sína jörð sem málaflutningsmaður, og dregur má ske fjöður yfir ýmsar upplýsingar, sem hann hefir áður gefið matsmanninum eftir bestu vitund. En þegar til dóms kemur, lítur hann á sig sem málaflutningsmann, er á að sækja málið fyrir sína jörð. Og jeg tel mikils vert, að það, sem rifjast upp með matinu og við þá skýrslugerð, sem fram fór í sambandi við það sje ekki látið fyrnast áður en málið er tekið fyrir.
Þar sem hv. l. þm. S.-M. (Sv. Ó.) talaði um þinglesna merkjalýsingu, þar sem allir hlutaðeigendur hefðu ekki skrifað undir, þá held jeg ekki, að slíkt sje til; jeg hefi ekki orðið var það. Jeg hefi sjeð allmargar landamerkjalýsingar liggja óinnfærðar, sem hefir verið vísað frá af því, að eitt einasta nafn vantar. Jeg hjelt, að það ætti sjer hvergi stað, að landamerkjalýsing hafi verið innfærð, ef vantað hefir undirskrift eins einasta hlutaðeiganda.
Af þessum ástæðum vil jeg mæla með því, að frv. nái fram að ganga, þótt jeg játi, að því sje ábótavant. Væri gott, að nefndin vildi athuga það til næstu umr. Svo gæti hv. Ed. breytt til bóta, og væri þá ekki loku skotið fyrir, að það gæti komið til einnar umr., hjer í deildinni fyrir þinglok. En hvað sem framgangi þess líður, verð jeg að álíta heppilegt, að það komist sem lengst, svo að það fái sem bestan undirbúning undir næsta aukaþing að sumri, og verði þá ráðið til heppilegra lykta.