06.09.1917
Neðri deild: 53. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í C-deild Alþingistíðinda. (2797)
107. mál, merkjalög
Þórarinn Jónsson:
Jeg skal ekki skifta mjer af þeim deilum milli hv. þm. N.-Ísf (S. St.) og hæstv. atvinnumálaráðherra, sem eru að gera þetta mál að landamerkjamáli milli þings og stjórnar.
Það er líklega versta óhappið, sem fyrir þetta mál gat komið, að lenda hjá hv. landbúnaðarnefnd, enda vildi jeg láta það fara til allsherjarnefndar, því að þar voru lögfræðingarnir, sem helst áttu um málið að fjalla, þar sem það að mestu leyti er rjettarfarslegs efnis.
Helsta breytingin, sem frv. gerir á gildandi lögum, er ákvæðið um, að sáttanefndirnar eða sáttafyrirkall hverfi. Þó að jeg telji þetta tvímælalaust til bóta og aðalkost frv., þá getur samt verið, að þurfi að orða það skýrar, eins og hv. 1. þm. Skagf. (M. G.) benti á. Það er alkunnugt, að menn hlífast fremur við að stefna nágrönnum sínum. En þegar það er ákveðið, að merkjadómurinn stefni, þá er komið yfir þann þröskuld.
Þá er annað atriði, sem jeg hefi minst á; það er um merkjagöngurnar. Það var einnig rjett, sem hv. 1. þm. Skagf. (M. G.) tók fram, að það er, ef til vill, ómögulegt að útkljá málið fyr en það er komið í framkvæmd, og hefi jeg áður tekið fram um það.
Við sjáum það nú, að nú er svo liðið á þingtímann, að ómögulegt er, að þetta mál komist fram, en eftir undirtektum hæstv. atvinnumálaráðherra er líklega vissara að reyna eitthvað að laga frv., áður en því er vísað til stjórnarinnar, því að ekki mun hún leggja mikla rækt við það. Þess vegna vænti jeg þess, að málið verði látið ganga til 3. umr. og að lögfræðingamir reyni þá að laga það þangað til, en hvað, sem ofan á verður, þá vona jeg, að stjórnin leggi frumvarpið fyrir næsta þing.