01.09.1917
Neðri deild: 49. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í C-deild Alþingistíðinda. (2825)

126. mál, sala þjóðjarðanna Helgustaða og hjáleigunnar Sigmundarhúsa

Frsm (Einar Árnason):

Landbúnaðarnefndin leggur á móti því, að frv. þetta verði samþ. Eru til þess tvær ástæður. Önnur ástæðan er sú, að þar sem lög um sölu þjóðjarða eru í gildi, þá telur nefndin ekki rjett að vera að heimila sölu einstakra jarða með sjerstökum lögum. Ef jarðir fást ekki keyptar eftir þeim reglum, sem gilda um sölu þjóðjarða, þá eru venjulega til þess lögmætar ástæður, og því sjálfsagt að vísa þeim frá. Hin ástæðan snertir þessa sjerstöku söluheimild. Helgustaðir eru þektir um alt land fyrir silfurbergsnámuna, sem er í Helgustaðafjalli. Þó að náman sje tekin undan, og sömuleiðis allar námur, sem kynnu að finnast í landareigninni, þá finst nefndinni ekki ráðlegt að selja þessa jörð, telur það næstum óforsvaranlegt að selja þá jörð, sem geymir merkustu námu landsins. Gæti líka orðið óþægilegt, ef náman og jörðin væru ekki í sömu höndum.

Jeg sje svo ekki ástæðu til að tala fleira um málið, en vil skjóta því til hv. flm. (B. St.), hvort honum sýnist ekki rjett að taka frv. aftur, þar eð víst má telja, að það verði felt.