01.09.1917
Neðri deild: 49. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 512 í C-deild Alþingistíðinda. (2830)

126. mál, sala þjóðjarðanna Helgustaða og hjáleigunnar Sigmundarhúsa

Sigurður Sigurðsson:

Hv. 2. þm. S.-M. (B. St.) hefir ráðist á mig út af frv. þeim, sam jeg hefi flutt, og á landbúnaðarnefnd fyrir afgreiðslu á frv., sem henni hafa verið falin. Frv. um ábúð jarða, sem jeg flutti nú á þingi, hafði verið flutt hjer áður, og hlotið viðurkenningu margra manna, er hafa til brunns að bera meiri þinghæfileika heldur en hv. 2. þm. S.-M. (B. St.). Og sömuleiðis hafa ýmsir bændur tjáð sig því hlynta. Hingað til hefir staðið á þinginu að afgreiða það. — En að það er enn ekki komið frá nefnd er því að kenna, að nefndin hefir mikið að gera, og vill athuga málið vel. — Jeg hefi grun um það, að hv. 2. þm. S.-M. (B. St.) sje ekki vel kunnugur ábúðarlögunum, eða þessu máli yfir höfuð, enda kom það fram við 1. umr., að hann hefir annaðhvort ekki lesið frv., eða misskilið það eins rækilega og unt er að misskilja.