16.08.1917
Neðri deild: 35. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 518 í C-deild Alþingistíðinda. (2839)
132. mál, kaup í landaurum
Frsm. (Gísli Sveinsson):
Mjer skilst á hv. flm. þessa frv. (B. J.), að hann sje tilbærilega ánægður með, að málið verði afgreitt til hæstv. landsstjórnar, og furðar mig það ekki, því að nefndin hefir tekið málinu vel, og hv. flm. þarf ekki að furða, að nefnd, sem á að gefa rökstutt álit, geti ekki afgreitt annað eins mál og þetta á annan hátt. Þar með er ekki sagt, að það, sem frv. fer fram á, sje ósanngjarnt, þegar það hefir fengið nægan undirbúning. En það gefur að skilja, að það er ekki auðhlaupið að því að gera svona „radikal“ breytingu á þeim launakjörum, sem ríkt hafa svo langa tíð. Það mætti segja, að nokkur þörf væri á að fá þetta lögleitt nú, sjeð frá því sjónarmiði, hvað embættismönnum hentar best. En hjer er líka margs fleira að gæta, þegar um er að ræða að umsteypa gömlu kerfi, sjerstaklega í peningamálum, og til þess eru yfirstandandi tímar afaróheppilegir. Jeg efast ekki um, að eftir alt það þvarg, sem orðið hefir um launamálin, verður reynt að koma á því fyrirkomulagi, sem ekki breytist óðar aftur. Það er ekki svo að skilja, að þingmenn hafi ekki hug til að stíga spor í rjettlætisátt. Hjer er að ræða um, hvort á að hlaupa út í hitt og þetta, óundirbúið, eða styðja að framgangi þess með góðum undirbúningi. Mjer þykir ekki þörf að fjölyrða meir um þetta. Þótt hv. flm. (B.J.) sjái grein í dönsku blaði um, að heppilegt gæti verið að gjalda laun í fríðu, þá er það engin ný hugmynd, því að hún er þekt líka erlendis, enda þótt þar sje engin verðlagsskrá höfð, á sama hátt og hjer hefir tíðkast. En það er ekkert land, sem lögleiðir slíkt á þessum tímum; málið er að eins rætt og athugað.
Jeg verð að segja það, að það er ekki sannleikanum samkvæmt hjá hv. flm. (B. J.), að þetta geri enga breytingu á upphæð launanna, og þarf jeg, því til sönnunar, ekki annað en vitna í orð hv. flm. sjálfs, er hann sagði, að 3000 kr. laun hækkuðu eftir þessu upp í 7000 kr. (B. J.: Já, hækkaði í krónum). Já, það hefir nú hingað til verið reiknað í krónum. Breytingin gæti verið sanngjörn frá sjónarmiði ýmsra manna, en þess ber ekki að dyljast, að hún er stórkostleg og getur verið misjöfn, því að þetta árið yrði upphæðin að vera svona mikil og hitt árið öðruvísi. Jeg vil geta þessa að gefnu tilefni, en annars er óþarfi að ræða frekar einstök atriði málsins.