14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 534 í C-deild Alþingistíðinda. (2848)

136. mál, aðflutningsbann á áfengi

Benedikt Sveinsson:

Mjer er algerlega ókunnugt um, að áhugi sje svo mikill í landinu fyrir því að fara nú að lappa upp á bannlögin, eins og ætla mætti af þessu frv. Það hafa að vísu risið upp tveir flokkar hjer í Reykjavík síðastliðið vor, sem hafa það á stefnuskrá sinni að bæta bannlögin, hvor á sinn hátt! Þeir hafa hvorir tveggja starfað töluvert, en jeg hefi þó ekki sjeð mikinn árangur af þeirra starfi.

Jeg tel það engan árangur, þótt þeir hafi komið fram tillögum á einstaka þingmálafundi, síst þar sem sumir af forvígismönnum eru þektir að því að vera ötulustu menn. — Hjer á þingi hafa svo, eins og mönnum er kunnugt, komið fram tvö frv., sem bæði miða að því að bæta bannlögin, að því er flutningsmenn sjálfir segja. En jeg hygg það fullkomlega rjett, sem hæstv. forsætisráðherra (JM.) tók fram, að hvorugt þessara frv. bæti í neinu lögin, og hefðu betur verið ósamin, enda kvaðst hann greiða atkv. móti því, að þau gengju til 2. umr.

Jeg hlýt að taka mikið tillit til þess, sem hæstv. forsætisráðherra segir um þetta mál, því að hann er sá maður, sem jeg hygg að beri einna best skynbragð á það og hafi mesta reynslu í þessum efnum. Honum er manna kunnugast um, hvernig bannlögin hafa verið haldin, og alt, sem að þeim lýtur, og hann er sjálfur einn af helstu fylgismönnum bannmálsins frá upphafi.

Það liggur nú sannarlega alt annað fyrir þessu þingi en að taka upp alónauðsynleg mál, mál, sem eru best fallin til að kveikja úlfúð og hatur manna milli. En eins og öllum er kunnugt þá er þetta eitthvert mesta tilfinningamál þessarar þjóðar, og verður varla svo á það minst, að ekki veki sundrung og æsing. Það eru önnur störf, sem kalla að nú á þessum erfiðu tímum, en þras út af óþarfa málum. Erjur um bannmál, trúarbrögð og þesskonar mega sannarlega bíða hentugri tíma. Þjóðin þarf að beita kröftum sínum til þess að komast með sem minstum skakkaföllum út úr því öngþveiti, sem hún er komin í sakir styrjaldarinnar, og kosta kapps um að sameina kraftana til þess að fá framgengt rjettarkröfum sínum, í stað þess að kveikja nú ófrið að ófyrirsynju um alls ótímabær mál. Jeg vil því leyfa mjer að bera upp svo felda rökstudda dagskrá, ef vera mætti, að það yrði til að hefta frekari umræður:

„Með því að engin brýn nauðsyn er á að gera neinar breytingar á bannlögunum, og önnur annvirki liggja nær garði heldur en að kveikja sundrung út af breytingum á þeim að sinni, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá“.

Jeg vil svo biðja hæstv. forseta að bera þessa dagskrá undir atkv., að umr. loknum, því að hún er sú fyrsta, sem lýst er hjer í hv. deild, og á því fyrst að berast upp samkv. þingsköpum, þótt einhver kunni að koma með aðra dagskrá síðar. Ef svo ólíklega kynni að fara, að þeir yrðu í meiri hluta, sem vilja halda áfram deilum um þetta mál, og því yrði vísað til nefndar, vi| jeg mælast til þess við hv. nefnd, að hún sjái. um, að bæði þessi frv. sofni svefni hinna rjettlátu, og komi ekki aftur fram í dagsljósið á þessu þingi.