14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í C-deild Alþingistíðinda. (2850)

136. mál, aðflutningsbann á áfengi

Bjarni Jónsson:

Það vill svo óheppilega til fyrir mjer, að jeg verð að standa upp, til að segja þessi fáu orð, á eftir langskemtilegasta ræðumanni deildarinnar. Jeg skal ekki vera fjölorður, en vil leyfa mjer að benda mönnum á, hvernig þessi lög eru til komin. Þau voru upphaflega gerð sem tilraun til að komast að raun um, hvort ekki mætti takast að útrýma vini okkar „Baccusi“ úr landinu, svo að hann leiddi ekki fleiri menn á glapstigu. Það var í fyrstunni hálfilla til þessarar tilraunar stofnað, en því fer fjarri, að hún sje á enda enn. Hjer liggur fyrir þinginu frv., sem fer fram á, að stofnað verði sjerstakt tollstjóraembætti hjer í Reykjavík til að byrja með, og svo víðar seinna meir, sem jeg hygg að muni hjálpa mikið til að færa okkur heim sanninn um, hvort þessi tilraun hafi hepnast eða ekki. — En nú kemur hv. 1. þm N.-M. (J. J.), eins og freistarinn forðum, og leiðir oss upp á hátt fjall, og sýnir okkur öll bestu vín veraldar, og spyr, hvort vjer viljum ekki þiggja. Það er auðvitað hart að neita svo góðu boði, en jeg vil minna menn á, að þessi lög eru til orðin með alþjóðaratkvæðagreiðslu, og því liggur í hlutarins eðli, að ekki er hægt að afnema þau, nema með sama móti, sem sje atkvgr. allrar þjóðarinnar. Jeg hefi því leyft mjer, áður en hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) lýsti sinni dagskrá, að afhenda hæstv. forseta aðra rökstudda dagskrá með mínu nafni. Hún á fullkominn rjett á því að vera fyr borin upp til atkv. samkvæmt þingsköpum, þar sem hún er afhent fyr hæstv. forseta, því að hún fullnægir þingsköpunum, þótt hún sje afhent ræðulaust.

Hún hljóðar svo:

„Samþykt þessa frumvarps væri sama sem afnám bannlaganna. En nú eru bannlög orðin til samkvæmt alþjóðaratkvæði, og væri því óhæfa að afnema þau, nema samkvæmt undangenginni almennri atkvæðagreiðslu um málið. Þar sem engin slík atkvæðagreiðsla hefir farið fram, verður deildin að taka fyrir næsta mál á dagskrá“.

Jeg skal geta þess, að það er samkv. flokkssamþykki, að jeg ber þessa dagskrá upp, þannig orðaða, og vil jeg því gera gildandi, eins og rjett er, að jeg hafi komið fyr með mína tillögu en hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) með sína. Það er dálítill munur á tillögunum, því að þeir, sem samþ. tillögu hv. þm. N.-Þ. (B. Sv. skuldbinda sig með því til að fella annað mál samskonar sem hjer verður tekið fyrir seinna. Það er því dálítil gildra, sem hann leggur fyrir menn. Bæði af þessu og svo hinu, sem jeg minntist á áðan, vil jeg, að mín sje borin upp fyr, ef hæstv. forseti leyfir.