14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í C-deild Alþingistíðinda. (2870)
156. mál, samábyrgðin
Flm. (Sveinn Ólafsson):
Sjávarútvegsnefnd hefir leyft sjer að koma með frv. þetta, í þeirri von, að það fái fram að ganga, þótt eigi komi það fyr en þetta, og að því verði lokið í tæka tíð. Málið er hjer borið fram eftir óskum margra þingmálafunda á Austurlandi og víðar, því að margir eru óánægðir með lögin, eins og þau eru nú. Það er tvent, sem nefndin hafði aðallega fyrir augum við samningu frv. þessa. Hún vildi gera ábyrgðarstofnunina sem tryggilegast úr garði, með því að bæta inn í lögin nýjum ákvæðum, sem miðuðu að því, og í öðru lagi vildi hún sníða burt þá agnúa, sem fæla menn mest frá því að tryggja skip sín hjá Samábyrgðinni, og bæta kjör þeirra, sem skifta við Samábyrgðarfjelagið. Þetta er eina þjóðstofnunin, sem að þessu starfar, og þyrfti hún því að geta nokkurn veginn fullnægt þörfum manna, en til þessa hefir það ekki tekist, því að enn er fjöldi báta og skipa óvátrygt, eða trygt í útlendum vátryggingarfjelögum.
Það, sem mest hefir dregið úr viðskiftum almennings við Samábyrgðarfjelagið, er að mönnum finst ábyrgðargjaldið of hátt, og ýms ákvæði í lögum þess og reglugerðum óhagkvæm. Úr öllu þessu, sem að framan er nefnt, hefir nefndin viljað bæta, svo sem hún hefir sjeð sjer kost á. Hún hefir reynt að gera stofnunina tryggari, með því að kveða svo á, að öll skip í Samábyrgðinni skuli flokkuð eftir föstum reglum, og þannig firra hana tjóni af því að taka í ábyrgð og bæta ónýta eða ósjófæra skipsskrokka.
Enn fremur ætlast nefndin til þess, að landssjóður haldi áfram að efla stofnunina með 5000 kr. árstillagi, þangað til hreinn varasjóður þess er orðinn 50000 kr., en þá ætti fjelagið að vera orðið fært um að taka að sjer viðtækari ábyrgðir en nú.
Það, sem hjer hefir verið nefnt, miðar einkum að því að tryggja fjelagið og stuðla að því, að það geti fært út starfssvið sitt. En þá kem jeg að þeim ákvæðum frv., sem eiga að auka vinsældir fjel. og gera aðgengilegra að skifta við það. Það eru einkum tvö ákvæði, sem óvinsæl hafa reynst; annað er, að jafnan skuli draga 2% frá skaðabótum, og hitt er, að skipaeigendur hafa orðið að gjalda þess, ef skipstjórar hafa sýnt vítavert skeytingarleysi, sem skipskaði hefir hlotist af. Þessi tvö óvinsælu ákvæði eru nú numin burt í frv. nefndarinnar. Þá er í frv. fastákveðið hámark og lágmark iðgjalda, sem eigi var áður lögbundið, og er þó hvorttveggja sniðið eftir því, sem venja hefir verið. Um þetta var nefndin ósammála Samábyrgðarstjórninni, sem við höfum verið í samvinnu við um samning frv.; fjelagsstjórnin áleit þetta fremur eiga heima í reglugerð. Eigi að síður töldum við ljettara að taka það í lögin, en heimila stofnuninni að ákveða sjálfri iðgjaldaupphæðina milli þessara tveggja takmarka.
Ástæða finst mjer ekki til að fjölyrða um málið frekar við þessa umr. Það er fram komið með litlum fyrirvara, en jeg vænti þess, að hv. deild taki því vel og leyfi því greiðan gang til 2. umr. Þá geta þeir hv. þingdeildarmenn, sem ef til vill hafa eigi enn haft tíma til að átta sig á málinu, fengið tíma til þess.
Jeg skal geta þess, að meinleg ritvilla hefir slæðst inn í greinargerð frv., og á greinargerð 5. gr. við 4. gr., en 4. gr. við 5.
Hjer er um nokkurt fjárhagsatriði að ræða, þar sem gert er ráð fyrir, að landssjóður verði enn að leggja fram fje til Samábyrgðarinnar um 3-5 ára skeið, til að tryggja fjelagið og treysta. Þetta atriði hefir nefndin borið undir fjárhagsnefnd, og er hún því samþykk.