16.08.1917
Neðri deild: 35. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í C-deild Alþingistíðinda. (2874)
156. mál, samábyrgðin
Frsm. (Sveinn Ólafsson):
Jeg hafði búist við andmælum gegn frv. þessu. Það er ekki nema eðlilegt, að einhver finni agnúa á því, og jeg get strax sagt, að jeg býst helst við aðfinningum á þeim atriðum, sem nú hefir verið um rætt. En þar með er ekki sagt, að þessi ágreiningsatriði þurfi að verða frv. að falli.
Hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) áleit ákvæði 1. gr. frv. ekki framkvæmanlegt; hjer væri enga menn að fá, er þess væru um komnir að meta skipin. Þetta er fjarstæða. Það er aðgætandi, að alt síðan 1905 eigum vjer lög um skoðun á skipum, hvort sjófær sjeu og megi leggja út á vertíð. Þessa skoðun framkvæma engir sjerfræðingar, og þessa skoðun eða flokkun höfum vjer unað við tiltölulega lengi. En þar, sem er að ræða um smá skip og báta, getur hver skynbær sjómaður, sem jafnframt er skipasmiður, álitið og metið, hvort skipið sje vandað eða í slæmu ástandi. Og að það sje kátlegt, að lögreglustjóri sje oddamaður, er ekki nema slagorð. Hann á þó að vera óhlutdrægur, og það skiptir mestu, enda er einmitt gert ráð fyrir, að hann byggi á áliti skoðunarmanna Samábyrgðarinnar, sem flokka. Það ætti ekki að veikja álit þeirra, þótt lögreglustjóri aðstoði þá. Jeg álít þessa viðbáru gersamlega þýðingarlausa. Og ef bíða ætti eftir því, að við hefðum sjerfræðinga til að meta og flokka þessar smáfleytur, eins hæfa og erlend fjelög hafa, vegna miljónafjelaga sinna, eins og t. d. Norsk Veritas og Lloyds í London, gæti svo farið, að við mættum bíða heilan mannsaldur eða lengur. En mjer þótti þetta atriði svo mikilsvert, að jeg vildi ekki sleppa því úr frv., og því má ekki sleppa. Samábyrgðin verður að taka upp flokkun; ella er hún dauðadæmd.
Hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) tók það fram, að jeg hefði ekki farið með rjett mál um frádráttinn á skaðabótunum fyrir skipspjöll. Jeg tók fram, að rjett væri að nema burt 2% frádráttinn; hann væri óvinsæll og ástæðulaus. Enn fremur ljet jeg í ljós, að rjett væri að fella burt 20% frádráttinn, vegna yfirsjóna skipstjóra, og skýrði frá því, að um þetta hefði ekki fengist samkomulag við stjórn Samábyrgðarinnar. Hv. þm. (B. Sv.) hefir afbakað orð mín um þetta. Samábyrgðarstjórinn stendur þarna og verður að kannast við, að þetta sje rjett. (G. Sv.: Hann hefir ekki málfrelsi hjer.) Það veit jeg vel, en er viðbúinn, að loknum fundi, að endurtaka þetta við hann utan þings. (B. Sv.: Þingmaðurinn nefnir ekki gruninn).
Það getur því að eins verið rjett að draga þennan fimtung skaðabótanna frá, að það sje rjett að hengja Pjetur, þegar Páll er sekur. Það nær engri átt, að skipseigandi gjaldi svika skipstjóra.
Þá tók hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) það fram, að af því, að í lögum frændþjóða vorra væri fyrirmyndin fyrir lögunum, bæri oss að halda sömu ákvæðum. En eftir því, sem mjer er kunnugt, eru slíkar stofnanir erlendis einstakra manna eign, en vor stofnun er opinber eign. Einstakir menn setja þar þau kjör og skilyrði, er þeim sýnist, en það þarf ekki að taka til vorrar stofnunar, sem komið er á fót með tilstyrk landssjóðs. Það getur verið, að Samábyrgðin eigi það á hættu að missa tryggingarsambönd við útlend fjelög, ef lagaákvæðum hennar er breytt, en hvað er á móti því að leita samkomulags við þau fjelög um þessi breyttu ákvæði? Jeg fæ ekki sjeð annað en að þessum lögum verði að breyta, er þau eru orðin óvinsæl, og það getur ekki verið tilgangurinn, að þau standi um aldur og æfi óbreytt. Um þessar breytingar, sem við vorum sammála samábyrgðarstjórninni um, virðist mega semja við erlendu fjelögin, og þótt þessi breyting yrði gerð, þá mætti fresta framkvæmd laganna meðan samið væri. Stjórn Samábyrgðarinnar mintist ekki á neina hættu, er stafað gæti af samningaslitum við útlend fjelög.
Annars get jeg sagt, að frekari undirbúningur þessa máls er sjálfsagt æskilegur. Þetta, sem við kornum fram með, ætti að vera til bráðabirgða, og innan tíðar hlýtur að reka að því, að gagnger breyting verði gerð á þessari stofnun. Kyrstaða má engin vera, því að þá nær stofnunin ekki tilgangi sínum.