16.08.1917
Neðri deild: 35. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í C-deild Alþingistíðinda. (2879)

156. mál, samábyrgðin

Einar Arnórsson:

Það er eitt ákvæði á frv., sem gerir það að verkum, að rjett er að samþykkja þá till. til rökstuddrar dagskr., sem hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) bar fram. Jeg á við ákvæði 6. gr. frv. Það má telja víst, að endurtryggjandi sje ekki lengur bundinn við endurtrygginguna, eftir að ákvæðum, sem samningar voru bygðir á, hefir verið breytt til óhagræðis honum, án hans vitundar. Ef þetta verður gert og 6. gr. samþykt, sem mjer skilst hv. frsm. (Sv. Ó.) leggja áherslu á, þá sje jeg ekki betur en að endurtryggjandi sje laus við þá samninga, sem hann hefir gengist undir; að minsta kosti er hann ekki skyldur til að tryggja framvegis, og ef svo fer, þá vantar Samábyrgðina endurtrygging. Auk þessa finst mjer það stappa nærri því að vera ósæmilegt löggjafarvaldinu að samþykkja lög, er ganga ofan í samninga, sem áður hafa verið gerðir. Hv. frsm. (Sv. Ó.) sagði, að með þessu lagi yrðu bátar að vera ótryggðir. En sú röksemd er veigalaus, af því að með því að samþykkja frv. getur svo farið, að ekki að eins þessir bátar, heldur allir, verði að vera tryggingarlausir, sökum þess, að Samábyrgðin getur sjálfsagt ekki tekið að sjer trygginguna, ef hana vantar endurtrygging.