16.08.1917
Neðri deild: 35. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í C-deild Alþingistíðinda. (2881)

156. mál, samábyrgðin

Einar Arnórsson:

Jeg stend upp til þess að gera fáeinar athugasemdir við sumt í ræðu hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.). Hann tók brunabótalögin til samanburðar, en það dæmi á ekki við, vegna þess, að 1915 voru lögin, sem sett voru 1907 ekki komin til framkvæmda, svo að ekki var að ræða um það að ganga á gerða samninga. Svo heppilega vildi til, að endurtrygging tekst hjá norsku fjelagi, en enginn vissi um, hvort fást mundi 1915, ekki fremur en vjer vitum nú, hvort fást mundi endurtrygging, ef þetta frv. yrði samþykt.

Hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) grípur fram í og segist búast við, að vjer megum sjálfir setja lög vor. Satt er það, en jeg tel það óhæfu, bæði siðferðilega og eins pólitískt rangt, að setja lög, er ganga á gerða samninga, og það skapar vantraust á landinu, að vjer förum að setja lög, sem ganga þvert ofan í samninga, sem gerðir hafa verið við þriðja mann.

Það virðist svo, sem orð hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) og hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) hafi alveg farið fram hjá hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.). Orð þeirra lutu að því, að Samábyrgðin yrði miður trygð, ef þetta frv. yrði að lögum. En mín orð hefir hann skilið svo, að ekki mætti gera lög, sem veittu endurtryggjanda betri kosti. En mín orð hnigu að því, að með frv. væru endurtryggjanda gerðir verri kostir. Jeg veit ekki, hvaða sannanir hv. þm. tekur gildar, en hver maður með heilbrigðri skynsemi getur sannfærst um orð mín, með því að ganga í gegnum greinar frv.

Tökum t. d. 3. gr. Þar er farið fram á að kippa burt ákvæðinu um frádrátt frá skaðabótum, og um það, að ábyrgðareigandi beri ábyrgð á skaða, sem hlotist hefir af skeytingarleysi eða svikum skipstjóra. Þessi atriði sýna, að Samábyrgðin verður ver trygð, og veita því endurtryggjanda rjett til þess að leysa sig undan samningunum. Jeg skal ekkert fara út í það, hvort ákvæði 3. gr. samábyrgðarlaganna eru sanngjörn eða ekki, en úr því að samningur hefir verið gerður á þeim grundvelli, þá er það næg ástæða til þess að rifta samningnum, því að með frv. er rýrð trygging fjelagsins.

Þá er með breytingunni við 4, gr. numin burt skyldan til þess að halda sjórjettarpróf, nema því að eins, að stjórn Samábyrgðarinnar telji þess þörf. Þetta kann að þykja ekki mikilsvert atriði, en svo er þó ekki. Það er almenn regla, að vátryggjendur setja beint skilyrði fyrir greiðslu bóta, að sjórjettarpróf sjeu haldin út af skipskaða. (Sv. Ó.: Þetta ákvæði er sett eftir tillögum stjórnar Samábyrgðarinnar). Það skiptir engu, þótt stjórn Samábyrgðarinnar hafi einróma lagt þetta til. Þetta getur leitt til tortryggni hjá endurtryggjanda, svo að Samábyrgðinni verði skylt að greiða tjónið. Endurtryggjandi getur sem sje sagt, að ekkert liggi fyrir, sem upplýsi tjónið, svo að hann sje ekki skyldur að greiða það.

Í 6. gr. frv. er ýmislegt, sem er athugavert frá sjónarmiði endurtryggjanda. Jeg skal ekki segja um, hvort hámarkið þyki við hlítandi, en í lögum slíkra fjelaga sem þessa er ekki venja að setja „tarif“; það er reglugerðaratriði, sem fer eftir atvikum, er löggjafarvaldið getur ekki rannsakað, því að ekki er víst, að „tarifin“ geti verið í föstum skorðum; slíkt fer eftir margra ára athugun, landsháttum, veðráttufari o. s. frv.

Mjer hefir verið sagt að iðgjald til Samábyrgðarinnar sje nú 11%, og verður að athuga, að endurtryggingarfjelagið hefir gengið að endurtryggingunni með þetta. fyrir augum. Þetta eitt er nóg til þess, að endurtryggingarfjelagið hefir fulla heimild til að segja þegar í stað upp endurtryggingunni.

Þá hefi jeg þegar sýnt fram á þrjú atriði í frv., sem gera Samábyrgðina ótryggari. Þá skaut einn hv. þm. því inn í, að ekki væri það til tryggingar, að frv. gerir ráð fyrir, að tryggja megi 20000 kr. í sama fari, en í samábyrgðarlögunum eru það ekki nema 15000 kr. Tryggingin ætti þá að vera fólgin í þessari flokkun skipanna. Jeg er ekki nógu kunnugur til að geta dæmt um þetta, nje heldur veit jeg með nokkurri vissu, hve hæfa menn vjer höfum til að vinna að þessari flokkaskipun. En setjum svo, að þetta sje kostur í sjálfu sjer; þar fyrir er ekki hægt að ábyrgjast, að endurtryggingarfjelagið meti þann kost svo mikils, að því þyki hann vega upp á móti öllum göllunum, sem hætt er við að þeim þyki þetta frv. hafa í för með sjer. Jeg mundi ekki gera það; mjer mundi þykja Samábyrgðin ótryggari en áður. Þá má segja, að þessar 5000 kr., sem landssjóður á að halda áfram að leggja Samábyrgðinni til, geri hana tryggari. En sú upphæð er svo lítill hluti alls, sem trygt er, að hún gerir naumast frá nje til með að gera fjelagið tryggara eða ótryggara. (M. Ó.: Það má þá hækka landssjóðstillagið). Það er satt, og reyna mætti að koma með brtt. í þá átt, þótt óvíst sje, að hún fái framgang, enda væri það frá mínu sjónarmiði naumast æskilegt; það þarf að búa svo um hnútana, að fjelagið geti orðið styrkt og borið sig sjálft, því að það er eitthvað bogið við það, ef það þarf til langframa að vera landsómagi.

Hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) kvaðst varla vita, hvort rjettara væri að vísa málinu til stjórnarinnar, til frekari undirbúnings, eða samþykkja frv. þegar á þessu þingi. Þetta er sönnun þess, að farnar eru að renna tvær grímur á hv. þm. (M.Ó.). Jeg skal að vísu játa það með hv. frsm. frv. (Sv. Ó.), að það geti verið ýms atriði í samábyrgðarlögunum, sem þörf sje að taka til athugunar; en jeg sje ekki, að það sje forsvaranlegt af okkur hjer í Nd. að samþykkja frv. þetta, án þess að vita um það, hvort endurvátryggingarfjelagið muni fáanlegt til að halda áfram endurtryggingum sínum. Jeg held, að mjer sje óhætt að fullyrða, að fæstir hjer í deild sjeu svo kunnugir sjávarvátryggingum, að við getum í fljótu bragði sagt, hvað þurfi og megi standa í frv. slíku sem þessu, og hvað ekki. Jeg þykist vita, að hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) og hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) muni vita það; þeir hafa báðir fengist svo lengi við sjávarútveg. En við hinir höfum ekki átt tök á að ganga í læri hjá þeim og afla oss fræðslu í þeirra skóla; og þeir mega ekki heimta það af oss, að vjer tökum umsvifalaust orð þeirra trúanleg, eins og heilagt guðsorð, þar sem vjer höfum fyrir oss orð samábyrgðarstjórnarinnar um, að frv. sje mjög varúðarvert; hún ætti þó að vera málinu kunnugust allra, því að hún hefir mesta reynsluna. Jeg vil ekki taka upp á mig þá ábyrgð að samþykkja frv., þvert ofan í tillögur samábyrgðarstjórnarinnar, og tel það, eins og jeg hefi áður sagt, ósæmilegt af löggjafarvaldinu að samþykkja lög, sem fara í bág við áður gerða samninga, að fornspurðum hinum málsaðilanum.