25.08.1917
Neðri deild: 43. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í C-deild Alþingistíðinda. (2888)

163. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Frsm. (Gísli Sveinsson):

Áður en jeg vík að þessu máli og byrja að tala um þetta frv., sem er komið frá fjárhagsnefnd, vil jeg leyfa mjer að geta þess, að jeg ekki leitt hjá mjer að víkja örfáum orðum að þeirri einkennilegu aðferð, sem hv. Ed. virðist ætla að beita sum tekjuaukafrumvörp, sem koma frá þessari hv. deild. Það kom í ljós í gær og aftur í dag, að hv. Ed. virðist ætla að sálga, eða að limlesta að mun, tekjuaukafrumv., sem hafa verið afgreidd hjeðan einróma eða fast að því. Jeg sje ekki annað en að það sje þvert ofan í grundvallarreglur í gildandi stjórnarskrá. Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að neðri málstofur þinga eiga jafnan frumkvæði í fjárhagsmálum landsins og tekjumálum, og það er engum vafa undirorpið, að það ber líka að skilja þetta svo, að þegar þessi deild hefir afgreitt nær einróma slík frv., þá á hún að eiga aðalatkvæði um þau. það gæti komið fyrir, að hv. Ed. leyfði sjer, með örlitlum atkvæðamun, að sálga frumvörpum, sem víst væri um, að mikill meiri hluti þingsins væri meðmæltur, og sjá menn, út í hvaða fásinnu þá er komið, er um tekjumál er að ræða. Það er kunnugt, að við fjárhagsnefndarmenn hjer í deildinni höfum verið að leitast við að koma með ýms tekjuaukafrumvörp, og þótt það hafi ekki orðið fyr en upp á síðkastið, þá kemur það til af því, hvernig ástandið er, og nefndin var hins vegar að bíða eftir framkvæmdum stjórnarinnar um þessi mál. Það má deila um, hve heppileg sum þessara frv. eru, miðað við vanalega tíma, en úr því að þessi hv. deild hefir samþykt þau, þá á hv. Ed. að taka fult tillit til þeirra. Það gleður mig, að þessi aðferð hefir einnig mætt aðfinslum í hv. Ed., hjá einum elsta og reyndasta þingmanninum þar (E.P.). Jeg hefi talað um þetta hjer til þess, að hv. Ed. sjái, að við gerum okkur ekki ánægða með slíka meðferð á málum þeim, sem afgreidd eru hjeðan. Mjer finst, að hv. Ed. ætti að láta sjer nægja að garfa í öðrum málum sem hjeðan koma, þótt hún skemdi ekki fjárhagsmál, sem afgreidd eru hjeðan með miklum meiri hluta atkvæða, eða ljeti þau hlutlaus í höfuðatriðunum.

Þá skal jeg víkja að þessu frv., sem komið er frá fjárhagsnefndinni, og fer fram á að hækka um helming útflutningsgjald af sjávarafurðum. Jeg hefi litlu við það að bæta, sem stendur í greinargerðinni, sem fylgir frumvarpinu, en vil að eins geta þess, að það útflutningsgjald af sjávarafurðum, sem nú er, er mjög lágt, enda eru einungis um þetta gömul ákvæði í gildi. Það er áreiðanlegt, að þá, sem þessa atvinnu stunda, munar ekkert um þetta gjald, ef þeir á annað borð stunda hana með nokkrum hagnaði. Nú býst jeg við, að ef þessi atvinnuvegur verður stundaður í framtíðinni, ekki síður en hingað til, sem vonandi er, þá gefi hann svo góðan arð, að þessi hækkun komi ekki hart niður. Jeg vil geta þess, að þetta er ekki nema rjettlát hækkun gagnvart þeim sköttum, sem á landbúnaðinum hvíla. Það hefir áður verið á það minst hjer, hvernig landbúnaðarmenn eru settir gagnvart lausafjárskattinum, og það var eiginlega það atriði, sem varð þess valdandi, að fjárhagsnefndin afrjeð að koma með þetta frv. Hækkunin á verðlagsskrám hefir orðið gífurleg, alt að helmingi á síðustu tímum, miðað við þann tíma, sem lögin um lausafjárskatt eru frá, og þar af leiðandi hefir lausafjárskatturinn orðið hærri og tilfinnanlegri. Nú stendur svo á, að bæði þessi gjöld eru frá svipuðum tíma, en útflutningsgjaldið hefir staðið í stað, jafnframt því, sem lausafjárskatturinn hefir hækkað. Eins og hv. þingdeildarmenn muna, kom hjer fyrir skömmu fyrir deildina frv. til laga um hækkun á útflutningsgjaldi af síld, sem ekki er nema sanngjarnt, ef eðlilegt ástand ríkti nú, þar sem síld hefir hækkað afarmikið í verði síðan það útflutningsgjald, sem nú er á henni, var ákveðið. Fjárhagsnefndin, sem fjekk það frv. til meðferðar, ætlar ekki, eins og sakir standa nú, að láta það frv. koma fram, en kemur með þetta frv., sem fer fram á hækkun á útflutningsgjaldi af öllum sjávarafurðum, í staðinn. Nefndin ætlar ekki heldur að koma með frv. um framlengingu verðhækkunartollslaganna, enda kemur þetta frv. að nokkru leyti í staðinn.

Jeg sje svo ekki þörf á að fara fleirum orðum um frv. þetta, enda á það að vera óþarft, og vona jeg, að hv. deild taki því vel og afgreiði það slindrulaust. Það er óþarft að geta þess, þar eð það stendur bæði í fyrirsögninni og greinargerðinni, að þetta er að eins bráðabirgðahækkun, sem gildir til ársloka 1919, eða út það fjárhagstímabil, sem nú fer í hönd. Frv. á að ganga í gildi sama dag og lögin um verðhækkunartoll falla, eða 17. sept. í haust, og má þá segja, að betur sje farið en heima setið fyrir sjávarútveginn, því að þessi útflutningsgjaldshækkun nemur ekki eins miklu og verðhækkunartollurinn hefir verið. Með þessu frv. virðist fjárhagsnefndinni, ef það verður að lögum, vera skapað jafnvægi milli tveggja aðalatvinnuvega landsins, og einnig með frv. um hækkun tekjuskatta, nái það fram að ganga, því að það fellur bæði á landbúnað og sjávarútveg. Því væntir nefndin þess, að báðum þessum frv. verði vel takið.

Enda þótt ef til vill megi búast við andmælum, sje jeg ekki ástæðu til að fara fleirum orðum um þetta mál, nema mjer þyki þurfa seinna.