25.08.1917
Neðri deild: 43. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í C-deild Alþingistíðinda. (2889)

163. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Fjármálaráðherra (B. K.):

Þótt jeg sje fylgjandi útflutningsgjöldum yfir höfuð, eins og kunnugt er, á jeg mjög bágt með að veita þessu frv. fylgi mitt. Jeg er hlyntur útflutningsgjöldum vegna þess, að þau er auðvelt að innheimta, trygt að ekkert tapast af þeim og ómakið við innheimtuna lítið. Þau eru því hentug hjer á landi, af því að hjer er engin sjerstök tollgæsla. Það verður að taka tillit til þess, hvort tollarnir renna skilvíslega í landssjóð, og hvort þeir hafa siðferðilega ill áhrif á viðskiftalífið. Eins og sjá má á þessu frv. nær það að eins til annars aðalalvinnuvegar landsins, sjávarútvegarins. Jeg fer þá að skilja, hvers vegna hv. fjárhagsnefnd ætlar sjer ekki að koma með frumvarpið, sem stjórnin lagði fyrir þingið, um framlengingu verðhækkunartollsins til þessa árs, og jeg fer þá líka að skilja, hvers vegna einn hv. flokkur hjer í þinginu vildi ekki aðhyllast frv., sem stjórnin ráðgerði að koma með í þessa átt, til þess að auka tekjurnar. Jeg hafði samið drög til frv., sem gekk út á hækkað útflutningsgjald, sem átti að ná til allrar útfluttrar vöru, og svo vægilega var í sakirnar farið, að jeg ætlaðist til, að gjaldið af hverju útfluttu hrossi yrði að eins 1 kr., af hverri sauðkind 15 aur., af 1. flokks ull ¾ eyris og 2. flokks ull ½ eyrir og að hækka útflutningstollinn af sjávarafurðum um 25— 40%. En það voru ekki allir í stjórninni sammála um að bera frumvarpið fram, því að atvinnumálaráðherrann vildi ekki fallast á það, og vegna þess var það ekki borið fram, en þetta sýnir þó, að stjórnin hefir hugsað eitthvað um að auka tekjurnar. Jeg hugsaði að hafa gjaldið sem svaraði 1% af verði vörunnar, eða sama gjald og lagt var til grundvallar þegar útflutningsgjaldslögin voru sett 1881, því að þá var tollurinn sem næst 1% af sannvirði vörunnar, eins og verðið var þá. Þetta gjald, sem farið er fram á með þessu frv., svarar til l½—2% af vanalegu verði á sjávarafurðum, en það er talsvert hærra en þingið hugsaði sjer 1881 og að eins lagt á annan atvinnuveginn. Það hefir meir en bryddað á því á síðari tímum, að þeir þm., sem koma frá landbúnaðarhjeruðum, hafa viljað hlífa bændum við að borga. skatta í landssjóð, en að vilja hlífa einni stjett við því, annari fremur, er mjög hættulegt fyrir samvinnu þingsins, sem er nauðsynlegt að sje hin besta. Jeg efast mjög um, að þessi andi, sem komist hefir inn í þingið, sje bændum yfirleitt að skapi, því að svo marga bændur þekki jeg, sem það væri fjarri skapi að vilja ekki greiða sinn hlut. Yfir höfuð er þjóðin farin að greinast í allskonar sjerfjelagsskap, sem jeg held að mætti kalla hringa, því að þeir miða. oftast að því að efla hagsæld þeirra, sem þeim tilheyra, á annara kostnað. Þessir hringar hafa myndast alla leið frá fámennum verkfræðinga- og lögfræðingahóp til fjölmennustu hópa. (M. Ó.: Sláturfjelagið t. d.). Hver og einn hringurinn hugsar mest um sinn hag, en minna um landsheillina í heild sinni. Og þetta er innleitt að útlendri tísku stærri landanna, þar sem hver stjett er margfalt fjölmennari, já, oft fjölmennari en öll íslenska þjóðin.

En hjer er þjóðin svo lítil, að það má næstum skoða hana sem eitt heimili, og því eiga þessir hringar alls ekki við hjer. Þessi sundurgreining þjóðarinnar í eiginhagsmunaskyni er ekki til góðs; hún venur menn á að hugsa eingöngu um eigin hag eða hag þess litla fjelagsskapar, sem maður er í, en við þá hugsun lamast fyrirhyggjan fyrir bæði landi og þjóð í heild sinni. Það leiðir enn fremur til ójafnaðar milli atvinnuflokkanna eða jafnvel fulls fjandskapar. Jeg get vel litið á núverandi þingflokkana sem hringa, því að hjá þeim er nú ekkert stórmál, sem skiftir mönnum í flokka. Þeir verða því nokkurskonar hringar, vegna þess, hve óeðlilega þeir eru til orðnir, og þegar þingið þannig er klofið í marga hringa, þá er opnuð leið fyrir „börsspekulationum“, sem eru enn svo lítt þektar hjer, inn í þingið. Jeg hefi orðið þess var, að á þessu þingi hafa þessar „börsspekulationie“farið ljettfeta fram með þingborðunum og jafnvel uppá hæstu tinda. Mjer finst, að þegar um skatta og tollálögur er að ræða, verði þingið að skoða alla einstaklinga þessarar þjóðar sem greinar á sama stofni, en það hefir ekki verið talin venja greinanna á trjánum að vera að metast um, hvað hver þeirra á að bera eða hve mikla næringu hver þeirra á að draga frá stofninum, þegar um tollmál er að ræða. Rjettsýni og kærleikur til allra jafnt er besta leiðarstjarnan í öllum tollmálum.

Af þessum ástæðum sje jeg mjer ekki fært að mæla með þessu frv., nema úr sje bætt og lagt á alla atvinnuvegi jafnt. Heldur en að samþykkja þetta frv. myndi jeg sætta mig við, að landið tæki lán, eða því að eins, að þingið og hv. fjárhagsnefnd sjái sjer fært að bæta úr á annan veg. Hv. frsm. (G. Sv.) sagði, að núverandi útflutningsgjald á sjáfarafurðum væri lágt, og það er rjett, því að kaupmenn hafa skoðað það sem verslunarkostnað og því ekki látið það koma fram í verðlaginu, en ef það verður tvöfaldað, verða þeir að taka tillit til þess.

Háttv. frsm. (G. Sv.) sagði enn fremur, að þetta væri til að jafna upp á móti ábúðar- og lausafjárskatti, sem hækkaði við dýrtíðina. Það er rjett, að þessir skattar hækka, en hve mikil er þessi hækkun? Eftir fjárlögunum er hækkunin frá því fyrir stríðið ekki nema 25000 kr. Þetta er svo lítið, þegar það dreifist á ? landsmanna, að ekki er takandi tillit til þess, og því síður þegar þess er gætt, að miklu meiri upphæð er veitt til landbúnaðarins, beint og óbeint, í sömu fjárlögunum. Hv. frsm. (G. Sv.) benti á það, að lögin ættu að ganga í gildi sama daginn og verðhækkunartollslögin ganga úr gildi og ættu því að taka við af þeim. Jeg hygg, að rjettlátara hefði verið að láta verðhækkunartollslögin gilda út þetta ár. Þau hefðu þó náð nokkurn veginn jafnt til flestra vörutegunda, og alls engin deila getað orðið milli atvinnuveganna.

Jeg hygg, að það mundi skapa meiri jöfnuð og almennari ánægju, að eitt yrði látið ganga yfir alla atvinnuvegi jafnt. Annars er til leið til að auka landssjóði tekjur. Það t. d. má hækka vörutollinn um 30 eða 40 %, eins og sykurtollurinn var hækkaður um 30% hjer á árunum. En það er nógur tími að grípa til þess þegar menn sjá, hvernig fjárlögin líta út frá þinginu. Jeg vona, að háttv. deild takist að láta tekjurnar koma sanngjarnlega niður, svo að allar stjettir verði ánægðar.