18.07.1917
Neðri deild: 13. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 717 í B-deild Alþingistíðinda. (290)

7. mál, laun hreppstjóra og aukatekjur

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg er þakklátur háttv. nefnd fyrir undirtektir hennar undir frv. Eins og stendur þykir mjer það bæta að hækka heldur en að lækka, og það sýnist nefndin hafa gert. Að eins vil jeg geta þess, að mjer finst, að 25 kr. hefði mátt standa, þótt ferðakostnaður væri og greiddur, því að vitanlega eru uppboð oft miklu smærri en svo, að uppboðslaun nemi 16 kr. Sum uppboð nema mjög lágri upphæð, 50 kr. eða minna, t. d. fyrir ómaga. Held jeg því, að 25 kr. hefðu mátt standa, en það er ekki stórt atriði. Yfirleitt sýnist mjer, að nefndin hafi bætt frv.