29.08.1917
Neðri deild: 46. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 625 í C-deild Alþingistíðinda. (2918)

172. mál, markalög

Einar Arnórsson:

Jeg skal nú vera stuttorður um þessa „markleysu“, er hjer liggur fyrir. Háttv. 1. þm. Eyf. (St. St.), sessunautur minn, studdist við drottinvald Búnaðarfjelagsins, að mjer skildist; kvað búnaðarþingið því hlynt, að þetta mál gengi fram. Mjer er sama, hvaðan gott kemur. Jeg tel frv. engu betra þótt það komi frá hinu háa búnaðarþingi, en ekki frá þeirri háttv. landbúnaðarnefnd.

Háttv. sessunautur minn (St. St.) furðaði sig á því, að jeg spurði, hvað ætti að marka. Frv. segir ekki ljóst fyrir um það. Það segir „búfje“, en búfje getur þýtt sauðfje, eins og það virðist þýða í frv., en svo getur það nafn og náð yfir hross, nautgripi og geitfje. (P. P.: Þingmaðurinn sagði áðan, að geitur væru ekki búfje). Ef háttv. þm. Mýra. (P. Þ.) hefir heyrst það, átti hann að taka betur eftir, eða reyna að skilja betur. En þar sem stendur í 11. gr., að kýr eigi að helga eignarrjett að kálfi, ef „fje er ómarkað, eða markið óglögt“, hlýtur það að byggjast á því, að nefndin hugsi sjer nautgripi markaða. (S. S.: Eiga að vera markaðir). Jeg er feginn að fá þær upplýsingar frá háttv. samþingismanni mínum. En alt ber þá að þeim sama brunni, að 1. gr. er gersamlega ranglega orðuð, er þar stendur: „sauðfjáreigendur“. Margir eiga sauðfje, þótt þeir eigi ekki kýr, og sjeu kýr búfje, og þær eigi að marka, ætti að standa í greininni „búfjáreigandi“, en ekki „sauðfjáreigandi“.

Annars sje jeg ekki ástæða til að karpa frekar út af frv. Þó skal jeg nefna eitt mjög ósanngjarnt ákvæði, sem sje það, að sá, sem kaupir fje, á að færa það til marks innan tveggja daga. það getur oft reynst erfitt, eða jafnvel ómögulegt.

Annars hefir hv. þm. A.-Sk. (Þorl. J.) tekið í sama strenginn og jeg, að stefnan sje óheppileg, frv. bæti lítið úr ruglingnum og geri mönnum óþarfa örðugleika og kostnað.