29.08.1917
Neðri deild: 46. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í C-deild Alþingistíðinda. (2919)
172. mál, markalög
Sigurður Sigurðsson:
Jeg skal ekki mæla margt, en það hefir glatt mig að sjá aðra glaða. Það er ekki svo oft, að alvörusvipurinn fer af mönnum hjer í deildinni, og sjaldnast nema þegar háttv. 2. þm. Rang. (E. J.) heldur einhverja af sínum skemtilegu ræðum. En sjaldnast er ofmikið af því góða, og hláturinn er eitt af því góða. Þingmenn mega því gjarnan hlæja að þessu frv.; jeg get vel unnað þeim þess.
Eins og háttv. frsm. (St. St.) tók fram hefir þetta mál, markamálið, verið oftar en einu sinni til umræðu á búnaðarþinginu. Formaður Búnaðarfjelagsins, sem nú er, afhenti landbúnaðarnefnd frv. til markalaga, þar sem aðalatriðin voru að heimila sýslufjelögum að taka upp yfirmark á hægra eyra, en hreppsmarkið sje yfirmark á hinu. Nefndin gat ekki fallist á þessa stefnu í markamálinu, afhenti þetta frv. þingskrifaranum hr. Pjetri Zophoniassyni og mæltist til þess, að hann athugaði málið. Varð það til þess, að þessi maður bjó til frv. það, sem hjer liggur fyrir, á þgskj. 596.
Því er ekki að leyna, að mál þetta hefir verið rætt töluvert í blöðum þeim og tímaritum, er ræða búnaðarmál, og altaf hefir það komið fram og verið kvartað um, að lagaákvæði vantaði, og að nauðsynlegt væri að gera eitthvað í þessu efni. Flestir hafa hallast að því að lögákveða sýslumark sem yfirmark á öðru eyra, en hreppsmark á hinu. En gegn því hafa risið allmikil andmæli, og hefir málið því ekki komið fram á þingi í þeirri mynd, nema einu sinni og átti þá ekki vinsældum að fagna.
Það er aðalatriðið frá nefndarinnar sjónarmiði og annmarkinn mesti, að nú geta allir tekið upp fjármark, hvernig sem á stendur. Eftir því, sem fjáreigendum fjölgar og mörkin verða fleiri, veldur það meiri og meiri erfiðleikum og glundroða frá því sem áður var. Enda eru fjármörk altaf að aukast, eins og óskilafjárauglýsingar í blöðunum bera ljósastan vott um. Er full ástæða til að ráða bót á þessu.
Nefndin komst að þeirri niðurstöðu, að erfitt væri að ráða bót á þessu, nema að setja hemil á, að menn geti tekið sjer mörk upp úr þurru og án þess að vita, hvort aðrir hefðu notað það áður. Sumum hefir dottið í hug að fela stjórnarráðinu sjálfu að hafa eftirlit með þessu og halda spjaldskrá yfir öll mörk á landinu og þá líklega á 2. skrifstofu stjórnarráðsins. En svo virtist flestum, sem þessi skrifstofa myndi hafa nóg að starfa, þótt ekki væri á hana bætt. Þá kom mönnum til hugar að setja sjerstakan markvörð, sem háttv. þm. hafa nú hent gaman að og nefnt ýmist markakonung eða markgreifa. Hefir komið út allítarleg ritgerð um þetta eftir Björn hreppstjóra í Grafarholti, og eru fleiri honum samdóma um þetta. Það á að vera einn maður, er hafi eftirlit og umsjón með öllum mörkum hjer á landi, upptöku þeirra og lögskráning. Þetta eru drögin eða ástæðurnar til að frv. kom fram.
Um aths., sem komið hafa fram nú við 1. umr., skal jeg ekki fjölyrða. Sennilega eru sumar þeirra á rökum bygðar. Háttv. samþingismaður minn (E. A.) las frv. aftur á bak, eins og sagt er, að viss persóna lesi biblíuna, og var því ekki á góðu von. (E. A.: Eða eins og guðfræðingarnir lesa biblíuna á hebresku). En sennilega hefir honum ratast margt rjett á munn, þeim góða og vísa manni, og er gott að eiga hann að til aðstoðar landbúnaðarnefndinni í þessu máli. (E. A.: Ef frv. fer til
2. umr.). Hana vantar tilfinnanlega lögfræðing til ráðuneytis. (B. J.: Hún hefir ráðanaut). Annars fanst mjer margt af því, sem hann og aðrir hafa sagt móti frv., frekar sprottið af viðleitni til að snúa út úr en af góðum vilja til að lagfæra það, sem miður fer.
Þar sem rætt hefir verið um, að nautgripir sje markaðir, þá er það víst og satt, að það tíðkast sumstaðar. Það er ekki alment, en það á sjer stað, og þá víst einkum þar, sem geldgripir eru reknir á fjall, eins og sumstaðar átti sjer stað áður og enn ber við að gert sje. Það má vel vera, að til sjeu menn, er eiga hross og nautgripi, en ekki sauðfje, en það mun ekki alment. (E. A.: í mörgum kaupstöðum). Já, vitanlega, t. d. hjer í Reykjavík, og með tilliti til þess mætti laga upphafið á 1. gr.
Jeg ætla ekkert að segja um einstök atriði frv. nú við 1. umr.; það hafa aðrir leyft sjer það. En fái málið að ganga til 2. umr., vænti jeg, að nefndin eigi vísa góða aðstoð í háttv. samþingismanni mínum (E. A.) að laga misfellur, sjerstaklega misgripin um „citöt“ í önnur lög. Jeg vil helst ætla, að þessar aths. sjeu gerðar til þess að henda gaman að þessari einföldu landbúnaðarnefnd, en ekki sprottnar af illgirni. Og með það fyrir augum, að þær hafi verið gerðar í góðu skyni, vona jeg, að málið fái að ganga til 2. umr. og verði síðan lagað, svo að vandlátir menn megi vel við una.