06.07.1917
Efri deild: 4. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í C-deild Alþingistíðinda. (2926)
24. mál, sameining Ísafjarðar og Eyrarhrepps
Guðjón Guðlaugsson:
Eins og háttv. deild er kunnugt er tíminn dýr núna. Jeg er þess vegna þeirrar skoðunar, að rjettara sje að drepa þau mál strax, sem eiga að deyja, heldur en að vera lengi að veita þeim nábjargirnar.
Hv. flm. (M. T.) taldi það vera rangt hjá mjer, að mál þetta hefði verið felt með jöfnum atkvæðum í hreppsnefndinni, og benti á, að það hefði verið samþykt með 3 atkv. gegn 3. Slíkar samþyktir eru að vísu fáheyrðar, en það kom þá í ljós, að oddviti hafði úrskurðað málið samþykt. 3 menn á móti 3 mönnum er sannarlegt jafntefli, því að oddviti er aldrei nema maður, eins og hinir.
Oddvitinn úrskurðaði það samþykt. Hann hefir ekki flökrað við því, þann heiðursmann, að koma dálítið fram sem „parti“-maður. Það eru þó flestir oddvitar, sem hafa þann sið að telja mál fallið þegar ekki fæst meiri hluti atkvæða.
Hv. þm. Ísf. (M. T.) talaði um, að það væri gott mannkaup í Hnífsdælum. Ef Ísafjarðarkaupstaður á að fara að kaupa Hnífsdæli sem þræla, má geta þess, að það hefir oft komið fyrir, að hertekið fólk hefir verið keypt dýru verði, og það hefir þótt borga sig, en það er ekki víst, að það hafi verið svo gott fyrir þá, sem herteknir voru, heldur fyrir þá, sem nutu þeirra á eftir.
Hv. flm. (M. T.) tók fram, að hreppsnefnd Eyrarhrepps vildi fyrirmuna Ísafjarðarkaupstaði kaup á fossafli, og fæ jeg varla skilið, að hún vilji fyrirmuna þeim fossaflið, ef vináttan er jafnmikil og hv. flm. (M. T.) segir. Vináttan getur ekki staðið á eins föstum fótum og háttv. flm. (M. T.) segir, eða hjer er orðum aukið eða eitthvað misskilið.
Jeg geri það ekki að neinu kappsmáli, hvort frv. er lofað að fara til nefndar eða ekki, þótt það raunar sje að eyða tíma í hjegóma, sem hingað á ekki að koma.