17.08.1917
Efri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í C-deild Alþingistíðinda. (2992)
124. mál, löggæsla
Frsm. (Magnús Torfason):
Það er einungis örstutt athugasemd. Háttv. 1. þm. Rang. (E. P.) sagði, að frv. hefði verið flaustrað af. Það er misskilningur, því að það er ætlast til þess, að í fjárlögunum verði nákvæmari ákvæði gefin um þessi lög, þar á meðal hve margir og á hve mörgum stöðum þessir eftirlitsmenn skuli vera.