23.08.1917
Efri deild: 37. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í C-deild Alþingistíðinda. (2996)
124. mál, löggæsla
Frsm. (Magnús Torfason):
Jeg bjóst ætíð við því, að slíkan þef mundi kenna frá háttv. þm. Snæf. (H. St.), sem raun er á orðin.
Jeg skil ekki háttv. þm. Snæf. (H. St.), er hann talar um, að jeg sem flm. ætli að binda landssjóði nýjar stórbyrðar. Jeg tók þó skýrt fram þegar við 1. umr., að jeg ætlaðist til, að til þessarar löggæslu væri varið þeim 10,000 kr., sem stjórnin fer fram á í fjárlagafrv. sínu að veittar verði til eftirlits og gæslu bannlaganna. (H. St.: Það stóð ekki í frv.). Að vísu, en jeg tók það fram í flutningsræðu minni (H. St.: Umræður hafa ekkert lagagildi).
Hv. þm. Snæf. (H. St.) spurði, hvers vegna jeg vildi ekki ákveða þetta í fjárlögunum, heldur koma með það í lagaformi. Jeg hugði, að hver háttv. þingm. hefði getað sagt sjer það sjálfur, ef hann hefði viljað lesa frv. með athygli og taka eftir því, sem þar stendur. Þar segir, að stjórnarráðið setji reglugerð fyrir þessa menn og ákveði laun þeirra og starfssvið. Þetta er ekki venja að taka fram í fjárlögunum, og mjer er óhætt að segja, að slíkt ákvæði finst ekki í neinum fjárlögum. Þegar af þessari ástæðu var því sjálfsagt að bera fram málið í frv.formi.
Annara hneykslaði það háttv. þm. Snæf. (H. St.), að frv. fór fram á löggæslu hjer á landi, eftir því sem þörf krefur. Því trúi jeg mæta vel, að það hneyksli hann. Jeg veit vei, að hann vill helst enga löggæslu. Hann vill, að fólkið geti fengið pytlurnar brotalaust heim til sín. Það liggur nú bak við alt hans skraf í þessu máli. Enda hefir hann blandað máli þessu saman við bannlögin og eigi sjeð annað en bannlagagæslu í frv. Hann hefir leyft sjer að halda því fram, að bannlögin komi ekki tollgæslu við. En sannleikurinn er sá, að bannlagabrot fara svo að segja alveg eftir tollgæslunni.
Háttv. þm. Snæf. (H. St.) fann að fyrirkomulagi löggæslunnar samkv. brtt., fann að því, að löggæslumenn skyldu fyrst skipaðir í kaupstöðunum. Um það vil jeg vísa til 1. gr. frv., sem ákveður, að löggæslumenn skuli setja í kauptúnum, þangað sem siglingar frá útlöndum eru mestar. Og þær eru vitanlega mestar til kaupstaðanna, sem von er; það leiðir af sjálfu sjer, að miklar siglingar til og frá útlöndum bera aðallega kaupstaðina uppi. Er því brtt. í samræmi við 1. gr. frv.
Það er ekki svo að skilja, að þessum mönnum sje að eins ætlað að rækja starf sitt í kaupstöðunum. Stjórnarráðið ákveður starfssvið þeirra og getur ákveðið, að þeir eigi ekki að eins að aðstoða lögreglustjórann í sjálfum kaupstöðunum, heldur og í öllu þeirra umdæmi. Og það eftirlit fást kaupstaðirnir aldrei til að kosta.
Jeg get ekki kannast við, að menn þurfi að hræðast, að ferðakostnaðurinn verði gífurlegur. Menn geta ekki sagt, að lögreglustjórar hafi farið djúpt í vasa landssjóðs nje varið miklu í ferðakostnað handa sjer og öðrum. Það er sáralítið, oftast fáein hundruð króna á ári. Aftur á móti afla þeir oft landssjóði drjúgum tekna með löggæslu sinni, oft tugi þúsunda með litlum tilkostnaði. Einn lögreglustjóri aflaði eitt sinn landssjóði 28,000 kr. á einu sumri, en fjekk þó aldrei sæmilegan ferðakostnað endurgoldinn, alls að eins nálægt 1000 kr. Það voru þakkirnar fyrir góða löggæslu. Óhætt mun að byggja á því, að lögreglustjórar muni ekki láta nota meira fje í ferðakostnað en hæfilegt er. Enda hefir stjórnarráðið eftirlit með því. Þessi hræðsla er annars vantraust á stjórninni. Nú höfum við þó fengið þá 3, ráðherrana, og vald þeirra gagnvart embættismönnum hefir verið styrkt; ætti því ferðakostnaðurinn ekki að vera sú grýla, er fældi menn frá frv.
Háttv. þm. Snæf. (H. St.) gat þess og, að lögregluþjónar hefðu víða starf sitt sem aukaverk. Þetta getur vel verið, þótt ekki sje mjer um það kunnugt. Á Ísafirði hafa lögregluþjónslaunin verið einar 1000 kr. Það er ekki nein von til þess, að maður verji öllum sínum kröftum í starf, sem er launað með einum 1000 kr. Og svo verður að gá að því, að bæjarstjórnir hafa tekið upp á því að láta lögregluþjóna vinna ýmislegt í bæjarins þarfir, t. d. innheimta fyrir hann gjöld. Jeg hygg því óþarfa fyrir þingið að draga úr löggæslu hjer á landi, og sjerstaklega að halda í við lögreglustjórana. Væri miklu frekar ástæða til að uppörfa þá.
Öðru sje jeg ekki ástæðu til að svara háttv. þm. Snæf. (H. St.). Það þýðir ekki fyrir okkur að þræta meir um þetta mál, úr því að bannlögunum hefir verið blandað inn í það. Skoðanir okkar á því máli eru svo sundurleitar, að engin von er til þess, að við getum nokkurntíma orðið sammála í því.