23.08.1917
Efri deild: 37. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í C-deild Alþingistíðinda. (2997)

124. mál, löggæsla

Kristinn Daníelsson:

Jeg vil að eins gera örstutta athugasemd við ræðu háttv. þm. Snæf. (H. St.).

Hv. þm. (H. St.) sagði, að jeg og hv, flm. (M. T.) ætluðumst til, að þessi löggæsla væri til verndar bannlögunum. Orð mín við 2. umr. fjellu á þá leið, að jeg kvaðst vera drengur, er við gengi, og að gæsla bannlaganna hefði meðal annars knúið mig til þess að vera frv. fylgjandi. En það er alt annað en að bannlögin ein hafi vakað fyrir mjer. Jeg gat þess og þá, að þjóðin hefði krafist þess á mörgum þingmálafundum, að eftirlit með bannlögunum yrði aukið og að þeirri kröfu vildi jeg fylgja fram. Þetta er eini vegurinn til þess. Að minni hyggju er bannmálið eitt af bestu málum þjóðarinnar, og á það skilið öflugan stuðning löggjafarvaldsins.

Mjer er löggæsla annars ekki eins kunn, en þó hygg jeg, að frv. geti miðað til betri tollgæslu, og jafnvel verið til hagnaðar fyrir landssjóð, eins og hv. flm. (M, T.) tók fram. Hitt hafði jeg eigi hugleitt nánar, hvort þeim áðurnefndu 10000 kr. skyldi varið í þessu skyni. Það gat og hugsast, að sá liður yrði feldur, enda veit jeg ekki betur en að fjárveitinganefnd Nd. hafi orðið sammála um að fella hann úr fjárlögunum. En þá hugði jeg, að þessi ráðstöfun, með víðtækari verkahring, gæti ef til vill náð fram að ganga.

Mjer finst ferðakostnaðargrýlan vera ástæðulaus, og dæmið, sem hv. þm. Snæf. (H. St.) tók, um flöskurnar í pokanum, sem sökt væri hjá Hornströndum, vera fjarstæða. Þannig löguð dæmi má altaf setja upp,

Jeg ætla svo ekki að fjölyrða frekar um málið. Er jeg ekki vonlaus um, að það hafi töluvert fylgi hjer í hv. deild.