04.09.1917
Neðri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í C-deild Alþingistíðinda. (3008)

124. mál, löggæsla

Forsætisráðherra (J. M.):

Þetta er lítið atriði og ekki vert að rekast mikið í því. En ekki er þó rjettur samanburðurinn hjá háttv. frsm. (M G.), því að ef ætti að auka löggæslu í Suður-Múlasýslu, þá dygði ekki að setja einn löggæslumann þar, heldur yrðu þeir að vera fleiri og á fleiri stöðum. Er því ekki rjett að bera það saman við kaupstaðina, því að hjer er ekki um að ræða að setja löggæslu um land alt, þar sem þess kynni þó að vera þörf.