30.08.1917
Efri deild: 43. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 727 í C-deild Alþingistíðinda. (3034)

178. mál, laun íslenskra embættismanna

Magnús Torfason:

Jeg geri ekki ráð fyrir, að jeg þurfi að fara mörgum orðum um þetta mál á þessu stigi. Það hefir verið skýrt frá tildrögum frv. og rjettmæti þess, í sambandi við annað mál, skifting bæjarfógetaembættisins í Reykjavík. Hv. Nd. hefir með því að samþykkja það frv. viðurkent, að laun yfirdómaranna sjeu oflág. Og jeg lít svo á, sem þingið hafi skuldbundið sig til þess að hækka laun þessara manna, með því að samþykkja stjórnarskrárbreytinguna frá 1915. Vitanlega er ákvæði um stundarsakir í stjórnarskránni um, að þeir menn, sem nú gegna yfirdómarastörfum, skuli einkis í missa af borgaralegum rjettindum sínum, en jeg hygg, að því verði naumast neitað, að þeir sjeu pólitískt dauðir með þessu ákvæði. Jeg get ekki neitað því, að mjer finst þetta í alla staði æskilegt, en hins vegar er sjálfsagt að bæta mönnum það upp með laununum, að þeim er lögð sú skylda á herðar að fást ekki við stjórnmál. Nefndin í stjórnarskrármálinu 1913 gat þess einnig í nefndaráliti sínu, að sjálfsagt væri að launa þessi embætti svo ríflega, að þau væru virðulegri og eftirsóknarverðari en önnur ámóta embætti.

Jeg vil að endingu geta þess, að launaviðbót þessi, er ekki eins mikil og í fljótu bragði mætti virðast, sökum þess, að gera má ráð fyrir, að yfirdómurunum verði að öðrum kosti ætluð dýrtíðaruppbót.