14.09.1917
Neðri deild: 60. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 738 í C-deild Alþingistíðinda. (3053)

178. mál, laun íslenskra embættismanna

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg fæ ekki sjeð, að það sje fremur ástæða til að bíða með að gera laun yfirdómara viðunandi, þótt von sje um, að breytt verði um fyrirkomulag dómstóla landsins innan skamms. Jeg sje yfir höfuð ekki, að fram sje komin nein ástæða móti því, að rjett sje að bæta laun þessara dómenda. Mjer finst, eins og háttv. þm. S.-Þ. (P. J.), brtt. háttv. 1. þm. Skagf. (M. G.) fara helst til langt. Samt mun jeg við þessa umræðu greiða atkvæði með henni, og þá einkum vegna yfirlýsingar háttv. tillögumanns síðast um, að hann muni reynast fús á að koma síðar fram með brtt. um að hækka launin frekar en farið er fram á í þessari tillögu hans. Vona jeg, að frv. verði ekki felt, hvorki með rökstuddri dagskrá nje neinum öðrum hætti.