10.09.1917
Efri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í C-deild Alþingistíðinda. (3068)

189. mál, frestun á skólahaldi

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Mál þetta er stórt og vandasamt til úrlausnar. Liðið er á þingtímann, svo að ef það á að ganga fram í frumvarpsformi, þá verður það naumast nema með afbrigðum frá þingsköpum, og naumast með þeirri íhugun, sem þyrfti. Hitt er eðlilegt, að þingið láti í ljós álit sitt og vilja í málinu.

Eftir því, sem mjer hefir skilist, hafa umræður til þessa aðallega snúist um það, hvort kolabirgðir landsins leyfðu, að skólahald yrði hjer á landi í vetur eða eigi. Minni áhersla hefir verið lögð á olíuna, og er svo að sjá, sem menn geri sjer meiri vonir um að fá nægilega mikið af henni heldur en af kolum. Ekki er mjer kunnugt um, á hverju menn reisa þær hugmyndir

Ekki hefir það enn komið fram í umræðunum, hve mikil kol búist er við að sparist, ef skólatíminn yrði styttur. Háttv. þm. Ak. (M. K.) tók það fram, að nálægt 1000 smálestir mundi þurfa til skólanna. Ef þetta er miðað við venjulega kolaeyðslu, þá má draga hjer nokkuð frá, því að tvent verður að aðgæta í þessu sambandi. Annað er það, að ýmsir skólar eiga kol frá fyrri árum, og auk þess er ætlast til að færa víða saman kenslustofur. En ekki dylst mjer það, að naumast er það ýkja mikið, sem sparaðist við frv. Og svo mikið yrði það ekki, að annars þyrfti að stofna skipi í hættu inn á ófriðarsvæðið, því að kolin myndu ekki nema einum skipsfarmi. Mín skoðun er því sú, að tilganginum með þessu frv. verði ekki náð, nema því að eins, að menn geri hreint borð. Og hreint borð kalla jeg það eitt að afnema alt skólahald. En nú hafa menn kosið að gera hjer málamiðlun, þar sem Háskólinn á að starfa að nokkru leyti og tveir bekkir Mentaskólans, og finst mjer þá rjett, að sú málamiðlun nái nokkru lengra. Vil jeg sjerstaklega taka það fram, að þessi ástæða með kolin nær ekki nema að litlu leyti til annara skóla en þeirra, sem hjer eru í þessum bæ. Geta má þess t. d., að búnaðarskólarnir munu ekki þurfa meira en 10—15 smálestir af kolum til samans. Og kunnugt er það, að margir skólar eru svo í sveitum, að engu er eytt af kolum. Er því nokkuð hart að banna hjeraðsstjórnum að halda uppi skólum, þegar þær á annað borð treysta sjer til þess og eyða engum kolum, eða svo sára litlum, að ekki gætir að neinu. Jeg vil því ekki sleppa voninni um, að miðlunin nái svo langt, að inn í hana dragist hjeraða- og bæjaskólar, þar sem viljinn er eindreginn að halda skólunum við, og hins vegar lítil eða engin kolaeyðsla.

Jeg verð að kannast við það, að mjer virtust röksemdir líkar á báða bóga um það, hvort fresta skuli skólunum til miðsvetrar eða bíða þangað til meir kreppir að og hætta þá. Þó finst mjer viðfeldnara og að öllu eðlilegra að byrja og hætta þá, ef í nauðir rekur. Og í raun og veru virðist það vera einfaldasta úrlausnin. Og eðlilegast sýnist rnjer að treysta eins mikið á, að úr rætist með kolin, eins og bersýnilegt er að menn treysta á um olíuna, þar sem hún er ekkert tekin til greina.

Jeg mun þó greiða frv. atkv. til 3. umr., svo að kostur gefist á að íhuga það frekar.