10.09.1917
Efri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í C-deild Alþingistíðinda. (3071)
189. mál, frestun á skólahaldi
Forsætisráðherra (J. M.):
Menn hafa talað nm það, að heill almennings ætti að ganga fyrir skólahaldi. Mjer þykir þetta ekki sem heppilegast til orða tekið, því að mjer líst, að skólahald verði talið með heillum almennings.
Jeg skal ekki eltast mikið við einstakar ræður, sem hjer hafa verið fluttar. Að eins vil jeg geta þess, að engin vissa er fyrir því, að námsfólk streymi ekki hingað til Reykjavíkur, þótt skólunum væri lokað. Það vita allir, sem nokkuð hafa fengist við manntal, að til Reykjavíkur flykkist fjöldi karla og kvenna, er kallar sig námsfólk, en fara aldrei í neinn skóla. Og það fólk kæmi eins fyrir það, þótt skólar sjeu ekki haldnir.
Háttv. þm. Ak. (M. K.) hjelt því fram, að vetrardvöl námsfólks hjer í Reykjavík myndi ekki kosta minna en 1500 kr. Í fundarhljeinu hefi jeg leitað mjer nokkurra upplýsinga um það atriði hjá fólki, er selur fæði. Á stað, þar sem um 20 námsmenn keyptu fæði í fyrra fyrir 50 kr. á mánuði, er mjer sagt, að fæði muni kosta 60 kr. í vetur. Á sama stað voru leigð 3 einstök herbergi, eitt af þeim fyrir 2, og kostaði það 20 kr. á mánuði með ræstingu, hin tvö kostuðu 10 kr. á mánuði hvert með ræstingu, og er mjer sagt, að líkt muni nú verða. Í hvert herbergi er gert ráð fyrir að þurfi 3—4 skpd. af kolum. Jeg hefi ekki reiknað saman, hve mikið dvölin á þessum stað myndi kosta yfir veturinn, en jeg hygg, að hv. þm. Ak. (M. K.) væri nokkuð ör á skotsilfur, ef hann ætlaði mönnum að eyða 1500 kr. Á öðrum stað, þar sem gott fæði er selt, hefir verðið verið ákveðið 60 kr., og líkt munu herbergi kosta þar og á hinum staðnum. Og þar, sem fæði er einna dýrast, mun það kosta 65—75 kr. um mánuðinn, og er það á stöðum, sem sumir háttv. þm. munu þekkja af eigin reynslu. Hygg jeg því, að reikningur hv. þm. (M. K.) sje mikils til ofhár.
Jeg þykist vita, að hv. þm. Ak. (M. K.) muni hafa fengið mótmælaskeyti frá kjósendum sínum gegn því, að barnaskólanum þar verði lokað. Hafi hann ekki fengið skeytið, þá er það á leiðinni. Bæjarfógetinn á Akureyri hefir skýrt mjer frá í síma, að Akureyringar sjeu svo birgir af mó og við, að þeir þurfi lítið af erlendum kolum. Og jeg býst við, að svarið muni það sama, ef víðar væri spurt. Háttv. þm. Ak. (M. K.) fylgir auðvitað sannfæringu sinni, þrátt fyrir þessi mótmæli frá kjósendum hans, en hræddur er jeg um, að þingið eigi von á býsna miklum mótmælum, ef það tekur fram fyrir hendurnar á sveitarstjórnunum í þessu efni.
Það getur talist eðlilegt, að þessi hugsun, að loka öllum skólum, hafi vaknað um eitt skeið í sumar, þegar alt öðruvísi stóð á. En nú er það óverjandi að taka fyrir skólahald. Það hefir verið spurst fyrir víða um land um kolaþörf, og svörin hafa allvíða verið þau, að menn þurfi mjög lítið af erlendum kolum; þeir ætli að reyna að bjargast við innlent eldsneyti, svo að jeg hygg, að eldiviðarskorturinn rjettlæti ekki þetta örþrifaráð.
Jeg vil leyfa mjer að minnast á enn eitt atriði og skjóta því til hv. deildar, er frv. verður samþykt, hvort ekki mætti breyta 2. málsgr. 1. gr. þannig, að Háskólinn og Mentaskólinn væru undanþegnir þessum lögum. Það myndi ekki kosta meira fje eða kol, þótt kensla færi fram í öllum Háskólanum, heldur en með þessu fyrirkomulagi, að kenna einungis þeim, er undir embættispróf eiga að ganga í vetur. Og það er varla rjettmætt að taka fram fyrir hendurnar á Háskólanum að nauðsynjalausu, þar sem hann lögum samkv. á að hafa stjórn sinna mála sjálfur. Verði lærdómsdeild Mentaskólans leyft að starfa, hygg jeg ekki mikið sparað við það, að banna kenslu í gagnfræðadeildinni.
Jeg ætla ekki að orðlengja meir um frv. Veit, að örlög þess eru fyrirfram ákveðin í þessari háttv. deild. En það er von mín, að háttv. Nd. taki frv. til rækilegri íhugunar.