18.07.1917
Neðri deild: 13. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 823 í C-deild Alþingistíðinda. (3121)

70. mál, einkasala landssjóðs á kolum

Bjarni Jónsson:

Jeg álít, að orðalagið geri ekki svo mikið til, ef yfir því er lýst, að atkvæðin ákvarði ekki, að einkasala skuli komast á. (G. Sv: Þingmaðurinn um það og sínar „reservationes mentales“). Það er ekki „reservatio mentalis“, ef hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) heldur því fram, að rjettur skilningur hennar sje sá, er jeg tók fram, að stjórnin skuli undirbúa málið og láta þinginu skýrslur í tje. En ef till. á að skiljast eins og íslenska er vanalega skilin, þá er engin ástæða til að samþykkja hana.

Annars gat hinn hv. þm. (G. Sv.) sparað sjer sína kurteisu fyndni og allar endurtekningar sinnar visku. Jeg bjóst ekki við, að þær endurtekningar myndu sannfæra neinn. En annars má hann endurtaka það í 3. sinni, ef hann vill.

Áður en gengið væri til atkvæða, afhenti þm. Dala. (B. J.) forseta svolátandi rökstudda dagskrá:

Í því trausti, að landsstjórnin taki til rækilegrar íhugunar og rannsóknar, hvort ráðlegt sje, að landið taki að sér einkasölu á kolum og leggi fyrir næsta reglulegt Alþingi tillögur sínar, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.