02.08.1917
Neðri deild: 23. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 829 í C-deild Alþingistíðinda. (3139)

200. mál, hagtæring og meðferð matvæla

Frsm. (Bjarni Jónsson):

Jeg skal reyna að vera ekki mjög langorður, því að í sjálfu sjer er þetta einfalt mál, en vil þó geta þess, að helstu ástæðurnar eru komnar frá konum, í brjefi til bjargráðanefndar, og geta menn af þeim gert sjer málið ljóst.

Jeg vildi þá fyrst fara nokkrum orðum um orðalag till., með því að þingfyndnin hefir fundið sjer nokkuð til að narta í, því að þingfyndnin er í því lík götufyndninni, að hún ræðst á orðalag, meir af góðum vilja til að rangfæra en af nokkurri þekkingu, Sjerstaklega hefir orðið „hagtæring“ valdið þingfyndninni nokkurrar ógleði. Hafa sumir haldið, að það stæði í einhverju sambandi við orðið lungnatæring, en aðrir hafa óttast, að það væri danska, af því að þar er til orðið „Tæring“. Sennilega hyggja þá þessir, að „hann“ og „hún“ hljóti að vera dönsk orð, þar sem þau eru svo nauðalík í báðum málunum. Jeg hefi það fyrir satt, að þetta orð sje til í góðu og gildu íslensku alþýðumáli, og hefi jeg þar leitað álits hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.), sem ekki er mestur klaufinn hjer í þeim efnum. Hefir hann ekki fundið neitt við orðið að athuga. Að „tæra í hag“ þýðir að skifta niður hagkvæmlega, sitt tárið í hvern stað. Vona jeg nú, að mönnum batni málverkur þessi, þótt jeg hafi veitt því eftirtekt, sem raunar tekur ekki sjerstaklega til þingsins, að menn kynoka sjer við að neyta góðra og gamalla orða og kjósa heldur að búa til ný orð. T. d. eru menn nú að mestu hættir að segja „samsöngur“ og hafa búið sjer til „hljómleik“. Menn halda víst, að enginn geti sungið nema menn, og muna nú ekki lengur, að atgeirinn Gunnars söng við. Nú segja menn „notfæra“ sem ætti að vera „nytfæra“, en áður sögðu menn hagnýta. Vil jeg nú vona, að menn láti það ekki bitna á þessari þingsályktunartillögu, að þetta orð kemur þar fyrir.

En þá er það annað athugavert við till., að þar eiga konur allmikinn hlut að. Mönnum er oft gjarnt að færa háð að, ef haldið er, að konur viti eitthvað betur en aðrir menn. En það er þó víst, að meðferð og hagtæring matar er betur konum hent en körlum. Jeg fyrir mitt leyti vil játa, að jeg stend þar konum langt að baki. Og sje þetta bygt á hinni almennu skoðun, að konur geti ekki kunnað neitt, vil jeg spyrja, hver mest kunni er hann fæddist. Karlmenn hjer á landi fást ekki við matartilbúning, og mega vera fegnir að fá holl ráð og viturleg frá konum,

Nú hefir bjargráðanefnd farið fram á, að í nefndina væri skipaður efnafræðingur, og hafði nefndin þar sjerstakan mann í huga, Gísla Guðmundsson, er fengist hefir bæði við efna- og gerlarannsóknir, starfað mikið að rannsókn matvæla, svo sem skyrs og mjólkur, og er áhugamaður mikill um þessi efni. Hygg jeg, að nefndin gæti gert mikið gagn, ef í henni sæti þessi sjerfróði maður og góðar húsfreyjur, og hún reyndi að finna aðferðir til að spara mat og hagtæra, og nota eina tegund í annarar stað, sem ekki fæst, sem jeg hygg að ef til vill þurfi næsta vetur. Svo hafa þær efnafræðing sjer til aðstoðar og umsagnar, og gætu svo gefið út bæklinga til leiðbeiningar húsfreyjum úti um land. Gæti þetta sparað mikið fje og orðið hagræði, og t. d. sparað landssjóði umstang við að útvega torfenga hluti, sem má vera án. Það er sjálfsagt, að fræðsla almennings í þessum efnum er ætíð sjálfsögð og nauðsynleg, en ekki síst nú, er búast má við skorti sjerstakra tegunda.

Jeg sje ekki annað en að öllum hljóti að sýnast sjálfsagt að skipa slíka nefnd, þótt mönnum kunni að mislíka gerðir ýmsra annara nefnda, er skipaðar hafa verið. Sje jeg ekki, að hægt sje að láta alt, er heitir nefndar nafni, sæta sömu örlögum, þótt mönnum kunni að líka illa við einhverja sjerstaka nefnd. Þá er t. d. ekki hægt að láta það bitna á þessu máli, þótt mönnum hafi sumum líkað illa starf verðlagsnefndar. Hjer er alt annað haft fyrir augum, sem sje það sjerstaklega að spara mat og auka hollustu vegna gamalmenna og barna. Þessi nefnd á ekki að hafa sjerstakt vald, heldur að vera ráðunautur. Hún er ekki ein þeirra nefnda, sem hafa svo mikið vald, að landsstjórn fær engu tauti við þær komið, eins og þegar lítt færir galdramenn vöktu upp svo magnaða drauga, að þeir rjeðu ekki við þá.

Vil jeg svo ekki orðlengja frekar, en vona, að menn greiði þessari tillögu atkvæði sitt.