02.08.1917
Neðri deild: 23. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 833 í C-deild Alþingistíðinda. (3141)
200. mál, hagtæring og meðferð matvæla
Pjetur Ottesen:
Eins og háttv. fram. (B. J.) tók fram liggja þau drög til þess, að tillaga þessi kom fram, að brjef kom til bjargráðanefndar Nd. frá nokkrum konum hjer í Reykjavík, í hverju þær bera sig upp undan því, að konum hafi ekki verið gefinn kostur á því að taka þátt í þeim opinberu ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið út af dýrtíðinni hjer á landi. Þegar málið var til umræðu í nefndinni, voru allir á einu máli um það, að rjettara hefði það verið þegar í öndverðu, og rjett væri, að hafa konur í ráðum í nefndum þeim, er skipaðar væri út af dýrtíðinni, og að af því mætti gott leiða. Hitt var nefndin ekki öll eins sammála um, hvort það mundi koma að verulegum notum eða ná tilgangi sínum að fara nú að bæta úr því, sem landsstjórn og bæjarstjórnum kynni að hafa missjest í þessu efni, með því að skipa nú sjerstaka nefnd í Reykjavík, í viðbót við allar þær nefndir, er fyrir eru, til að koma að sjerþekkingu kvenna á þessum málum. Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) og jeg ljetum í ljós, að við værum í mjög miklum vafa um, að þetta mundi koma almenningi að fullum notum, og bentum á, að eins mætti auka starfskrafta nefnda þeirra, sem til eru fyrir, með því að bæta í þær konum, t. d. í matvælanefndina í Reykjavík og aðrar samskonar nefndir úti um land. Not slíkrar starfsemi mundi verða þeim mun betri og drýgri, sem hún væri dreifðari og næði betur beint til fjöldans. Eins er jeg viss um það, að búnaðarsamböndin muni, þrátt fyrir alla örðugleika, sem á því eru, reyna að halda í horfinu með húsmæðranámsskeiðin, sem þau hafa haldið víðs vegar um landið með góðum árangri. Markmið húsmæðranámsskeiðanna er einmitt þetta, að kenna fólkinu haganlega samsetningu matvæla, og þá auðvitað æfinlega valdar til fræðslunnar þær konur, sem eru þaulæfðar og vel að sjer í þessari grein. Er mjer kunnugt um, að námsskeiðunum verður haldið áfram þar sem jeg þekki til, og býst jeg við, að svo verði víðar. Held jeg því, að ef menn vilja gera eitthvað í þessa átt, væri betra að styrkja húsmæðranámsskeiðin eitthvað frekar en verið hefir, Held jeg, að sú aðferð muni reynast hagkvæmari en að setja nefnd hjer í Reykjavík, er svo ætti að fræða fólkið úti um landið með ritlingum og fyrirlestrum um þetta mál. Okkur virtist því, sem árangur þessarar nefndarskipunar mundi verða nokkuð vafasamur, en hins vegar hefði slík nefndarskipun að sjálfsögðu allverulegan kostnað í för með sjer. Af þessum ástæðum getum við ekki verið háttv. samnefndarmönnum okkar samferða um það að styðja þessa tillögu.