02.08.1917
Neðri deild: 23. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í C-deild Alþingistíðinda. (3142)

200. mál, hagtæring og meðferð matvæla

Sveinn Ólafsson:

Jeg skal eigi þreyta háttv. deild með langri ræðu; málið er varla þess vert, enda búið að taka ýmislegt fram um fánýti þessarar tillögu.

Mjer kom í hug danska spakmælið: „Jo galere, jo bedre“, þegar jeg las tillöguna; hún á svo skylt við margt af því fálmi, sem þessum dýrtíðarmálum fylgir. Þessar sífeldu nefndir, með óvenjulegum verksviðum, lenda í ógöngum og skemma stundum fremur en bæta.

Nýlega var hjer í deildinni athugað starf verðlagsnefndar um hámarksverð á smjöri, og þóttu lítil höpp hafa af hlotist. En svona hefir þetta oftar farið. Verðlagshámark hefir verið ákveðið hjer í Reykjavík á vörum, sem seldar hafa verið skaplegu verði úti um land, og afleiðingin orðið, að vörurnar hafa stigið þar óðar að hámarksverði, og neytendum þannig sköpuð erfiðari kjör en þörf var á.

Þetta stranga eftirlit og úthlutun frá opinberri hlið getur átt við í bæjum og verstöðum, en ekki í sveitum. Yfir bæjunum vofir hættan, og ráðstafanir, sem gerðar eru með þessum eftirlitsnefndum, verða að miðast við þá staði, sem þeirra hafa þörf. Jeg hefi enga trú á því, að þessi nefndarskipun, sem hjer er ráðgerð, verði að nokkru liði úti um land, eða jafnvel, að starfsemi nefndarinnar nái nokkuð verulega til sveitanna. Mjer er sem jeg sjái þessar 3 konur úr Reykjavík í leiðangri sveit úr sveit um þvert land og endilangt, prjedikandi, og ávöxtinn af starfi þeirra og fortölum, — sem jeg sjái þær heim komnar á miðjum vetri á skíðum úr fyrirlestraferðum, og ferilinn allan stráðan heilræðum, sem fæstir geta hagnýtt.

Jeg tel alveg rjett að fella till. frá 2. umr., og mun gera það, sem í mínu valdi stendur til þess, að svo verði gert. Hv. þm. V -Sk. (G. Sv.) hefir að öðru leyti tekið svo ljóslega fram um missmíðið á till., að jeg hefi þar engu við að bæta. Það þarf önnur og róttækari ráð til að afstýra dýrtíðarvandræðunum en í þessari till. felast. Sum þessara vandræða eru ískyggileg og taka helst til bæjanna, en sum eru meir ímynduð en veruleg.