16.07.1917
Neðri deild: 11. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 843 í C-deild Alþingistíðinda. (3156)

53. mál, stimpilgjald

Fjármálaráðherra (B. K.):

Það er rjett hjá hv. flm. (St. St.) að milliþingan. hefir haft þetta mál til meðferðar og lagt til, að það yrði samþykt. Síðan kom það inn á 2 þing, en var, eins og kunnugt er, ekki samþykt, heldur tók þingið aðra leið, sem sje þá að hækka þinglestrargjöld. Það er því í raun og veru búið að koma þessu gjaldi á. Jeg er hræddur um, að ef meir á að íþyngja þinglestri, þá hætti menn að þinglesa nema í ítrustu neyð. Á þetta var bent síðast þegar málið var til umræðu, og jeg held, að málinu hafi verið vísað til stjórnarinnar meðfram með það fyrir augum, að það dæi í höndum hennar. Það er hægur dauðdagi fyrir mál að vera vísað til stjórnarinnar, og vera svo lagt þar í gröf eða kistulagt, eða hvað menn vilja kalla það. Til þess hefir og verið ætlast af þinginu, er það vísaði þessu máli til stjórnarinnar síðast.

Mjer finst varla vert að hækka þetta gjald. Jeg benti á síðasta þingi á aðra leið til að fá inn svipað en sanngjarnara gjald, nefnilega gjald af víxlum og kvittunum, sem gengju manna á milli. Á Englandi er hið svokallaða pennygjald haft fyrir hærri kvittanir en 2 sterl.pd., „pennystamp“. Það mundi muna dálítið um það. Það gjald hefir ekki verið innleitt enn hjer, yrði ekki tilfinnanlegur skattur, og til þess þyrfti lítinn útbúnað. Það mætti nota til þess algeng frímerki, eins og á Englandi. Jeg vil og benda á, að einsog stendur er hjer um bil alveg ómögulegt og óframkvæmanlegt að fá tæki og efni, nema með afskaplegu verði, og held jeg því, að rjettara væri að fresta þessu frv.

Heppilegast tel jeg, að þessu gjaldi yrði breytt í stimpilgjald af víxlum, og sjerstaklega af útlendum víxlum, því að nú sem stendur er ekkert gjald af þeim greitt.

Helst vildi jeg, að farið yrði með þetta frv. eins og 1915, að vísa því til stjórnarinnar. Hún prjónar þá upp úr því það, sem hún álítur heppilegast, en hvað það verður, sem hún leggur til, get jeg ekki sagt um nú, að óhugsuðu máli.

Jeg vildi einungis gefa þeirri nefnd, sem málið fær til meðferðar, þessar bendingar, því að jeg tel það ógerlegt að samþ. frv. eins og það nú liggur fyrir.