30.07.1917
Neðri deild: 20. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 848 í C-deild Alþingistíðinda. (3160)
53. mál, stimpilgjald
Sveinn Ólafsson:
Jeg vil gera grein fyrir atkvæði mínu, sem jeg mun greiða móti þessu frv., fyrir þá sök, að jeg hefi enga verulega trú á, að þetta verði nokkur verulegur gjaldstofn, og enda þótt svo yrði í framtíðinni, þá er það ekki tímabært nú. Umstangið og óþægindin, sem af þessu stimpilgjaldi leiða í viðskiftum, hljóta að verða miklu meiri en landssjóðstekjunum nemur. Jeg veit vel, að nauðsyn ber til að reyna að finna leiðir til að auka tekjur landssjóðs, en þær leiðir, sem farnar verða, mega ekki baka gjaldendum meiri óbein gjöld en þeim beinu nemur.
Jeg hygg auðgert að benda á greiðfærari leið en þessa til að ná inn nokkrum þúsundum, þótt ekki væri nema að láta allar niðurjöfnunarnefndir í landinu jafna niður ákveðnum nefskatti, sem svarar einni kr. fyrir mann hvern. Þær jafna þá vitanlega helst á þá, sem færastir eru um að bera byrðarnar. Stimpilgjald yrði miklu ranglátara, því að það hittir engu fremur stórefnamenn og fjárbraskara en fátæklinga. Til dæmis er nú algengt orðið að greiða smáskuldir, eins og vinnulaun, með tjekkum og ávísunum, og á illa við að skattleggja þau viðskifti. Ekki eru heldur allir þeir, er vilja fá sjer hjónavígsluleyfisbrjef, neinir stóreignamenn, en einnig þá á að tolla. Enn kemur eitt til greina, og það eru lögin frá 1911, um aukatekjur landssjóðs. Jeg held, að í þeim sjeu sjerstakar ástæður fyrir hendi, sem mæli móti stimpilgjaldi, því að þinglestrargjald var hækkað eftir þeim lögum, með tilliti til þess, að það kæmi að nokkru leyti í stað stimpilgjalds. Það er því algerlega órjett að leggja þetta gjald ofan á þinglestrargjaldið. Hvað sem segja má frv. þessu til gildis, þá verður það aldrei einfaldleikinn, og þess þykist jeg viss, að flytjendur þess hafi ekki haft fyrir sjer kenningarnar um einfalt líf, þegar þeir sömdu það; svo álakanlega brenglar það og flækir öll viðskifti.