30.07.1917
Neðri deild: 20. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 857 í C-deild Alþingistíðinda. (3167)
53. mál, stimpilgjald
Fjármálaráðherra (B. K.):
Í sambandi við það, hve nefndin tekur dauflega í að færa gjaldið niður, þegar um smáupphæðir er að ræða, skal jeg geta þess, að á Englandi er goldið 1 penny af 5 sterlpd., 2 pence af 10 sterlpd., 3 pence af 25 sterlpd. o. s. frv., á Frakklandi 5 cent. af 100 frcs., í Noregi 10 aurar af alt að 200 kr. víxlum, 40 a. af alt að 400 króna víxlum, 60 a. af 600 og 50 af 1000 kr. Jeg skal ekki geta nánar annara landa, sem taka ekkert stimpilgjald, eins og t. d. Bandaríkin. Alstaðar þar, sem stimpilgjald er lagt á, er tekið tillit til tímans og upphæðar, enda væri gjaldið annars mjög órjettlátt.