03.08.1917
Neðri deild: 24. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 861 í C-deild Alþingistíðinda. (3172)

53. mál, stimpilgjald

Benedikt Sveinsson:

Háttv. frsm. (M. G.) ljet þess getið, að brtt. nefndarinnar færi fram á að leggja stimpilgjald á víxla útlendinga, sem greiddir væru hjer á landi. Fór hann þeim orðum um, að það væri heppilegt, þar sem gjaldið kæmi niður á útlendingum. Þetta er nú ekki alveg rjett athugað. Jeg er hræddur um, að útlendir kaupmenn, sem viðskifti eiga hjer á landi, mundu leggja þessi útgjöld, eins og önnur, á vöruna, sem þeir selja, svo að það kemur að síðustu niður á kaupendunum, sem eru innlendir. Ef til vill kæmi það niður á útlendu kaupmönnunum fyrst í stað, meðan þeim væri ókunnugt um þetta nýja gjald, en þeir mundu brátt komast upp á að jafna það upp á viðskiftunum á eftir, og að minsta kosti ekki brenna sig á sama soðinu oftar en einu sinni. Annars mun jeg greiða atkvæði á móti frv. í heild sinni. Mjer þykir það leggja ofmikil höft á viðskifti manna, enda mundi það valda ruglingi og erfiðleikum fyrst í stað, meðan fólk er að venjast lögunum. Það mundi stórum auka vandræðavafstur við öll viðskifti manna, og fyrirhöfnin verða meiri en svo, að kostnaði svaraði, vegna þeirra tekna, sem fengist í aðra hönd.