17.07.1917
Neðri deild: 12. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 869 í C-deild Alþingistíðinda. (3187)
57. mál, laxveiði
Einar Arnórsson:
Það mun rjett, sem hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) sagði, að ýmsir gallar eru á frv. Fyrst og fremst stappar nærri broti á 19. gr. þingskapanna, hvernig það er fram borið. Það vantar svo að kalla greinargerð fyrir frv., en í 19. gr. þingskapanna stendur, að skýring skuli fylgja á höfuðtilgangi og höfuðákvæðum frumvarpa, en jeg get hvorugt fundið.
Jeg ætlast ekki til, að frv. verði vísað frá af þessari ástæðu. Jeg vil að eins benda á þetta, því að æskilegt er, að þingmenn einstakir og þingnefndir eigi greiðan aðgang að að sjá, hvað fyrir flutningsmönnum vakir.
Auk þessa eru, eins og hv. þm. (B. Sv.) sagði, nokkur atriði, sem standa til bóta. Á því þarf engan að furða, um jafn víðtækt frv. og þetta er. Jeg vil benda á einstaka atriði, til athugunar fyrir nefndina, sem fær málið til meðferðar.
Í 13. gr. er svo ákveðið, að hreppstjórar skuli teljast samsekir lögbrjótunum, ef þeir vanrækja að kæra. Þetta er helst til hart ákvæði. Vitanlega er skylda þeirra að koma upp brotum, og vanræki þeir þá embættisskyldu sína, heyrir það undir lög um vanrækslu í embætti eða sýslan, einkum 144. gr. alm. hegningarlaga. — Jeg veit ekki, hvort hægt er að heimila hreppstjórum eða lögreglustjórum að taka tafarlaust upp öll ólögleg veiðigögn og girðingar. Mjer virðist dómsúrskurður þurfa að vera á undan genginn. — í 15. gr. er ákvæði, sem er óþarft; fyrst og fremst er það dómari, en ekki lögreglustjóri, sem úrskurðar sektir, þó að slíkt boð sem þetta verði ekki að skaða þar, sem löggæsla og dómsvald er í höndum sama manns. En þetta ákvæði er og óþarft í þessum lögum sjerstaklega, því að hið sama gildir um meðferð allra almennra lögreglumála.
Frv. þetta er mikið verk, og flutningsmenn víst haft nauman tíma; þess vegna er ekki áfellisvert, þó að smágallar sjeu á því. Uppástunga hefir komið um að vísa því til sjávarútvegsnefndar. En þótt þetta sje veiðimál, varðar það fremur landbúnað en sjávarútveg. Það snertir afnot af jörð, veiðirjett; því er það uppástunga mín, að því sje vísað til landbúnaðarnefndar.