05.09.1917
Neðri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 884 í C-deild Alþingistíðinda. (3218)

94. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa

Frsm. (Einar Arnórsson):

Jeg skal vera skammtalaður. Nefndin álítur, að slíkt mál sem þetta þurfi að vera undirbúið af stjórninni. Þar sem höfundur frv. er allra manna færastur í þessum greinum hjer á landi, vonast nefndin til, að stjórnin búi málið undir næsta Alþingi og noti til þess aðstoð höfundarins og annara verkfróðra og byggingarfróðra manna. Nefndin leggur því til, að málinu verði vísað til stjórnarinnar, ekki til þess, að hún svæfi það, heldur til þess, að hún leiði það fram til sigurs á sínum tíma.