06.08.1917
Neðri deild: 26. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í C-deild Alþingistíðinda. (3227)

120. mál, bygging, ábúð og úttekt jarða

Björn Stefánsson:

Jeg gat ekki varast það, að þetta frv. ætti að vera eingöngu stílað upp á eign einstakra manna, þar sem orð þess, eins og það hljóðar, einmitt benda til þess, að það sje stílað sjerstaklega upp á þjóð- og kirkjujarðir. Í 3. gr. stendur, að hún eigi jafnt við opinberar og einstakra manna eignir. Í þessum orðum fanst mjer felast það, að aðrar greinar frv. ættu eingöngu og aðallega við þjóð- og kirkjujarðir. Háttv. flm. (S. S) játar það, að ef til vill sje oflangt gengið í frv. að því er einstakra manna jarðeignir snertir. Hann gat þess og rjettilega, að leiguliðum hefði engin borgun verið trygð hingað til fyrir unnar jarðabætur. Jeg sagði, að sú bót, er frv. fer fram á, væri óveruleg og þyrfti að vera betri. Jeg vil leyfa mjer að minna háttv. flm. (S. S.) á, að fyrst að hann er á móti þjóðjarðasölunni, ætti hann að vinna að því að gera kjör leiguliða svo góð, að þeir hættu að sækjast eftir kaupum á ábúðarjörðum sínum og sættu sig við að vera leiguliðar. Fyrst að hv. þm. (S. S.) vill, að það opinbera haldi í jarðeignir sínar, ætti hann að sjá, að eina ráðið til þess er að bæta kjör leiguliðanna svo mikið, að þeir hafi engan hag af að kaupa ábúðarjarðir sínar, en eina leiðin til þess er að samþykkja frv. mitt um erfðaábúð leiguliða, sem jeg því vona, að háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) sjái um að ekki verði svæft í háttv. landbúnaðarnefnd.