09.08.1917
Neðri deild: 29. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í C-deild Alþingistíðinda. (3235)

140. mál, verðlag á vörum

Flm. (Einar Arnórsson):

Það eitt nýmæli felst í þessu frv., að landsstjórninni er heimilað, í 2. gr. frv., að undanþiggja innlendar vörur, sem útflutningsbann er á, eða kynni að verða lagt á, frá verðlagi. Að öðru leyti er frv. soðið upp úr tveim lögum, sem nú gilda. Vera má, að ástæða þyki til þess að taka fleiri ákvæði til athugunar, og sje því þörf á að athuga frv. í nefnd; því vil jeg leyfa mjer að leggja það til, að frv. verði vísað til bjargráðanefndar, að lokinni þessari umræðu.