14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í C-deild Alþingistíðinda. (3237)

140. mál, verðlag á vörum

Frsm. (Einar Arnórsson):

Bjargráðanefndin hefir fallist á þetta frv., með þeirri einu breytingu, að tveir af mönnunum skuli skipaðir, annar samkvæmt tillögum Fiskifjelagsins, en hinn samkvæmt till. Búnaðarfjelagsins. Að öðru leyti skal stjórnin sjálfráð um skipun þeirra. Þetta er eina breytingin, sem skiftir nokkru máli. Hitt eru að eins orðabreytingar.