13.09.1917
Efri deild: 56. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í C-deild Alþingistíðinda. (3250)

140. mál, verðlag á vörum

Frsm. (Karl Einarsson):

Nefndinni var ljóst, að þetta frv. hefir ekki inni að halda nægileg ákvæði um málið. Og þetta kom skýrt fram í ræðu háttv. 6. landsk. þm. (G.B.), sem er málinu mjög kunnugur, þar sem hann er formaður verðlagsnefndar. En vjer gátum ekki gengið frá málinu eins og vjer hefðum viljað, vegna tímaskorts. Vjer gátum ekki athugað málið til róta, nje gert neinar stórvægilegar umbætur á frv., og sáum því vænlegast að leggja það til, að háttv. deild samþykti það óbreytt, eins og það kom frá háttv. Nd.

Vjer fáum ekki sjeð, að ákvæðið í 2. gr. hafi verulega þýðingu, því að landsstjórnin mundi ekki undanskilja vörur hámarksverði, nema sjerstakar ástæður væru til þess. Og ef brtt. háttv. þm. Ísaf. (M. T.) verður samþykt, þá fjallar verðlagsnefnd um málið, og hygg jeg, að landsstjórnin mundi því síður ganga í berhögg við vilja hennar.

Nefndin leit svo á, að rjettast mundi, að sú vara væri undanskilin hámarksverði, er útflutningsbann væri lagt á, en hún áleit það þó ekki „praktist“. Hins vegar vill nefndin taka málið til nýrrar rannsóknar, eftir að hafa heyrt hæversk tilmæli hv. 6. landsk. þm. (G.B.). Og vona jeg því, að frv. verði ekki tekið aftur á dagskrá fyr en nefndin hefir athugað það, og mun nefndin skýra hæstv. forseta frá því.