21.08.1917
Neðri deild: 39. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 912 í C-deild Alþingistíðinda. (3256)

159. mál, forkaupsréttur á jörðum

Einar Arnórsson:

Jeg skal játa það, að það er mun betur frá þessu máli gengið nú en var áður, er það var til umræðu hjer í deild. Og þá fyrst að því leyti, að þessi 2 frv., sem áður voru, eru nú komin í eina heild, ásamt þeim ákvæðum, er til voru fyrir. Þetta frv., sem hjer liggur fyrir, er í þrem köflum. Fyrsti kafli er lögin frá 1905, um forkaupsrjett leiguliða. Og 2. kafli um forkaupsrjett á sjálfsábúðarjörðum, sem eigi var áður í lögum. Svo er loks 3. kafli, sem er algert nýmæli, og fjallar um forkaupsrjett landssjóðs. En þótt nú þannig sje frá öllu þessu gengið, þá finst mjer samt sem áður ýmsir gallar vera á frágangi frv. Auk þess er það mjög mikið álitamál, hvort stefna sú, sem tekin er upp í frv., sje sú rjetta. — Um 1. kafla frv. er ekkert að segja; það eru gömul lög, og mönnum kunn.— Jeg ætla að taka það fram strax, að jeg vona, að jeg verði ekki víttur fyrir það, þótt jeg fari út í einstök atriði í þessu máli, þar sem svo stendur á einnig hjer, að þetta mál er búið að vera í nefnd, og hún búin að leggja fram sitt álit, svo að það er engin nefnd skyldug til að taka málið til athugunar á ný, nema ef vera skyldi, að landbúnaðarnefnd fyndi ástæðu til að gera það. — Það, sem stendur í 7. gr. þessa frv., mun vera tekið orðrjett upp úr forkaupsrjettarlögunum, sem nú gilda, og vildi jeg í þessu sambandi skjóta því til nefndarinnar, hvort hún sjái sjer ekki fært að bæta inn í frv. ákvæðum, sem geti heft það, að farið verði í kringum þessi lög, eins og nú á sjer stað. Það getur vel verið, að það sje erfitt viðureignar, en væri hins vegar mjög æskilegt, ef það væri hægt. í 8. gr. frv. er ákvæði, sem jeg verð að játa, að jeg skil ekki vel, þar sem vitnað er til 3. gr. Það getur auðvitað verið, að þetta sje misskilningur minn, en jeg sje ekki, að skaðað geti að minnast á það, og fá skýringar á því, ef jeg fer hjer með skakt mál. Í 8. gr. er svo fyrir mælt: „Nú eru ítök eða önnur jarðargögn seld út af fyrir sig, og gilda þá forkaupsrjettarákvæði 3. gr.“.

Og þessi ákvæði í 3. gr. skipa svo fyrir, að ef seld eru ítök, skógar, fossar eða önnur jarðgögn, „og á þá sá forkaupsrjett til kaups eða leigu, er land á undir“.

En nú er það við þetta að athuga, eftir því sem jeg hygg að sje rjett hjá mjer, að sá, sem „land á undir“, er einmitt sá góði maður, sem er að selja. Svo framarlega sem þetta er ekki misskilningur hjá mjer, sem jeg held að sje ekki, þá vildi jeg mælast til þess, að nefndin athugaði þetta. Jeg get tekið til dæmis: Ef jeg á jörð, og í landinu liggur vatn, eða foss. Setjum nú svo, að jeg selji, og þá er jeg, sem er seljandinn, sá, sem á land undir, og á þar af leiðandi að eiga kaupin! — En þetta er að vísu atriði, sem auðvelt er að lagfæra, og að sjálfsögðu ber að gera.

Þá er 3. kafli í frv., sem jeg kann ekki við. — Þar er í 13. gr. vitnað til 1. gr., 4D jeg þykist vita, að það eigi að vera 12. gr. eftir frv., og er það því auðsjáanlega villa. En 2. málsgrein 13. gr. finst mjer dálítið athugaverð; hún hljóðar ,svo: „Ef seljandi fær hærra boð í jörðina en landsstjórninni þykir aðgengilegt, er hann sjálfráður um söluna“. — þetta finst mjer vera hreinasti óþarfi að taka fram. Því að það getur ekki komið til mála, að landssjóður eigi forkaupsrjett, svo framarlega sem einhver annar býður hærra verð. Jeg segi ekki, að þetta sje beinlínis rangt, en það væri heppilegra að orða það öðruvísi.

Þá finst mjer ekki heldur rjett það, sem stendur í 14. gr frv.: „Stjórnarráðið gerir nauðsynlegar ráðstafanir um bygging jarðanna, en um umráð þeirra fer eins og lög ákveða“. Eftir þessu liggur næst að álykta, að bygging jarða sje ekki eitt atriði í umráðum jarða. Það er eins og það væri eitthvað sjerstakt, sem heyrði ekki undir „umráðin“. Jeg kynni miklu betur við, að sagt væri t. d.: „Um meðferð þessara jarða fer eins og um þjóðjarðir“.

Í 15. gr. frv. finst mjer enn fremur vera ónákvæmlega til orða tekið, þar sem sagt er: „er landsstjórninni þá heimilt að rifta sölunni og kaupa fyrir sama verð og jörðin seldist síðast fyrir“. Það hlýtur að vera meiningin, að landsstjórnin geti rift sölunni, og kaupi svo með sömu skilmálum.

Hitt getur ekki verið meiningin, að landsstjórnin að eins rifti sölum, og hafi svo betri borgunarskilmála en aðrir, eða má ske sleppi við að gera kaupin. — Þá kem jeg loks að þeirri stefnu, sem tekin er upp í þessu frv.

Jeg hefi tekið það fram áður, við umr. um þetta mál, að mjer þykir það nokkuð hart aðgöngu fyrir menn, sem eiga jörð, að geta ekki gert sjer fje úr henni nema að láta hana fyrst ganga gegnum alla þessa liði, fyrst leiguliða, þá sveitarfjelag

og síðan landssjóð. Þetta eru, eins og allir sjá, miklar krókaleiðir.

Jeg skírskota til þess, sem jeg sagði um þetta áður, að með þessu eru lögð slík bönd á jarðirnar, að þeim er varla unandi, og má mikið vera, ef það er í fullu samræmi við 50. gr. stjórnarskrárinnar, þar sem allar þessar krókaleiðir hljóta að rýra mikið verðmæti jarðanna, án þess þó að seljandi fái nokkrar bætur fyrir. — Þá er og eitt enn þá, sem leiðir af þessu, nefnilega það, að sölum seinkar óþarflega mikið. Tíminn, sem lögin ákveða, er að vísu ekki nema 8 vikur, en getur líka dregist lengur. Leiguliði hefir fyrst 2 vikur til umhugsunar, og ef hann afsalar sjer kaupunum, þá er sveitarfjelagið næst, og hefir frest í 2 vikur, og svo, að því frágengnu, á landssjóður að hafa 4 vikur til að ákveða sig. Þarna eru komnar 8 vikur alls. En þar með er ekki talinn sá tími, sem gæti farið j að koma tilboðunum frá sjer, og svo í það að senda samþykki eða synjun um kaupin til seljanda, og eigi sá tími, sem hann missir á því að koma tilboði til forkaupsrjettareiganda. Það er. vel hugsanlegt, að þetta tæki ¼ úr ári, og stundum sjálfsagt meira.

Jeg geng að því vísu, að 2. og 3. kafli í frv. sjeu fram komnir af hræðslu við það, að margar jarðir safnist í fárra manna hendur. Jeg þóttist hafa sýnt fram á það, þegar nokkuð af þessu frv. var til 2 umr., að þessi hræðsla væri, eftir þeim ástæðum, sem nú eru, alveg óþörf, því að þeir menn, sem hafa mikil fjárráð, geta lagt sitt fje í margt, sem er miklu arðvænlegra en jarðakaup, svo sem verslun, iðnað og útveg. Því að sá, sem á jörð og rekur ekki bú á henni, fær oft ekki meira eftir hana en það, sem svarar venjulegum sparisjóðsvöxtum, og stundum minna. En aftur á móti þeir, sem leggja fje í iðnað eða t. d. útveg, hafa hingað til fengið miklu

meira. Það verða því að eins braskararnir, sem hjer á að setja hemil á. En þá er þetta ekki heldur svo heppilegt, því að það mun reynast fremur auðvelt að fara í kringum þessi ákvæði. Það er þó ekki svo að skilja, að jeg telji ekki rjett að heimila landssjóði forkaupsrjett undir sjerstökum kringumstæðum. Og það er þegar útlendingar, það er að segja þeir, sem ekki eru búsettir á Íslandi, eru að fala hjer jarðir til kaups. Því að þá er það venjulega af því, að einhver sjerstök hlunnindi fylgja jörðinni, svo sem höfn, fossar eða annað þess háttar. Undir þessum kringumstæðum væri fullkomlega rjett að setja skorður við sölunni, og láta landssjóð hafa forkaupsrjettinn. — Jeg skal svo ekki fjölyrða meir um þetta nú; málið er hjer til 1. umr., svo að hv. þm. hafa nægan tíma til að athuga það á ný.